Gefa út plötu, gera myndbönd og njóta Stefán Þór Hjartarson skrifar 11. júlí 2018 06:00 Huginn segist hafa rúllað lögunum út og klárað plötuna á tveimur, þremur mánuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Rapparinn Huginn gaf fyrir helgi út plötuna Eini strákur (Vol. 1) og hefur hún hlotið ansi góðar viðtökur. Platan er gefin út af KBE-samsteypunni sem Herra Hnetusmjör er aðalsprautan í, en Huginn er nýjasti meðlimur útgáfunnar og hún er einnig gefin út í samstarfi við stórfyrirtækið Sony Music Entertainment, sem hefur verið duglegt að dreifa íslenskri rappmúsík – til dæmis með Aroni Can og Herra Hnetusmjöri. „Ég er ógeðslega sáttur við móttökurnar – ég náttúrulega hafði ekki gefið út í einhverja sjö mánuði áður en platan kom út, þannig að ég vissi bara ekki neitt við hverju ég ætti að búast,“ segir Huginn og hljómar alveg himinlifandi með þetta allt saman þegar blaðamaður heyrir í honum. Lagið Eini strákur ásamt Helga Sæmundi kom út í fyrra og síðan þá hefur lítið heyrst annað en að í millitíðinni var Huginn innlimaður í KBE.Ertu bara búinn að vera að nýta þessa sjö mánuði í að vinna að plötunni? „Nei, engan veginn – þegar ég gaf út síðast var ég nýkominn í KBE og við vorum ekki með neitt stúdíó þá. Ég var að vinna með pródúsernum Why Run þá og hann hætti eiginlega að gera tónlist í smá tíma, þannig að þá var ég orðinn einn. Til að ég geri mína bestu tónlist þarf mér að líða orðið þægilega með manneskjunni sem ég er að vinna með; ég á erfitt með að hitta bara einhvern og gera tónlist. Svo settum við upp stúdíó og ég fór að vinna með Þormóði. Við höfðum aðeins unnið saman áður í stúdíóinu hans sem hann var með áður og það gekk alveg ágætlega en var ekki alveg að smella. En við tókum eitt „session“ í nýja stúdíóinu og gerðum Hætti ekki og þá flaug þetta af stað og allt í einu var ég kominn með heila plötu. Við skiptum henni í tvennt – Vol. 2 kemur út seinna.“Huginn segir ferlið hafa tekið um tvo til þrjá mánuði og því ekki um mikla vinnu að ræða enda hafi þetta einhvern veginn allt flætt út eftir að hann var kominn með fyrsta lagið. „Fyrsta lagið sem ég gerði á plötunni var Leiðinni til þín, ég gerði það með Lárusi Erni – hann býr í LA og var á Íslandi þannig að ég heyrði í honum og við gerðum þetta lag. Eftir það fór ég á ról og við pumpuðum út lögum á stuttum tíma.“ Lárus Örn er auðvitað poppundrabarnið bakvið heilalímið Neinei sem stundar tónlistarnám í Los Angeles um þessar mundir. Á mánudaginn kom út myndband við lagið Hætti ekki þar sem Huginn og hinir meðlimir KBE bregða sér í hlutverk rokkhljómsveitar. Gefa út plötu, gera myndbönd og njóta Huginn gaf út plötuna Eini strákur fyrir helgi og segir móttökurnar hafa komið sér á óvart. Hann hefur gefið út fyrsta myndbandið við smellinn Hætti ekki, þar sem KBE-strákarnir bregða sér í rokkgírinn. Huginn skrifaði undir hjá Sony um daginn. Þar með bætist hann í hóp með Aroni Can og Herra Hnetusmjöri. „Ég samdi handritið og átti hugmyndina – ég fékk innblástur frá Erase me myndbandinu með Kid Cudi og Kanye West, þar sem þeir eru í 70’s hljómsveit. Þetta átti ekki endilega að vera retró hjá okkur heldur við að rokka enn í dag. Mér fannst þetta fyndið og sniðugt og fannst þetta koma mjög fallega út. Þetta hljómaði samt ekki alveg jafn vel þegar við vorum að spila þetta „live“ þarna á hljóðfærin.“ Aðspurður hvort hann gefi upp hvenær nákvæmlega seinni hluti Eini strákur tvíleiksins komi út vill Huginn ekki svara því nákvæmlega, segist eiga eftir að brasa aðeins við lögin, taka fleiri lög upp og auðvitað leyfa Vol.1 að malla aðeins. Hvað er næst? „Ætli maður fari ekki bara að spila eitthvað, gera fleiri myndbönd og bara njóta.
Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Lífið Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fleiri fréttir Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Sjá meira