Lífið

Búið spil hjá Cheryl og Liam Payne

Stefán Árni Pálsson skrifar
Liam Payne og Cheryl Cole eiga saman drenginn Bear.
Liam Payne og Cheryl Cole eiga saman drenginn Bear. Vísir/Getty
Þau Cheryl og Liam Payne hafa ákveðið að fara í sitthvora áttina og tilkynntu þau um sambandsslit þeirra á Twitter í gær.

Þau hafa verið í ástarsambandi í um tvö ár en Cheryl sló fyrst í gegn í stúlknabandinu Girls Aloud og hefur hún síðastliðin ár verið dómari í X-Factor.

Liam Payne kom fyrst fram á sjónarsviðið sem meðlimur í sveitinni One Direction en samkvæmt breskum fjölmiðlum lauk sambandinu fyrir tveimur vikum.

Parið eignaðist son í mars á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×