Jón Gnarr bjó til Magnús Magnús Magnússon Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. júní 2018 11:30 Jón Gnarr og Eric Cantona voru í góðum gír þegar þeir hittust á Íslandi í apríl síðastliðnum.
Einn eftirminnilegasti karakter úr Áramótaskaupinu síðustu ár er Magnús Magnús Magnússon sem kom fram á sjónarsviðið í Skaupinu árið 2016. Magnús Magnús Magnússon er hugarsmíð Jóns Gnarr en hann upplýsti um það í viðtali við franska knattspyrnumanninn Eric Cantona á dögunum. Magnús Magnús gat ekki gert hið fræga víkingaklapp í takt við þjóðina og olli það honum miklu hugarangri enda var hann hreinlega útundan þegar allir Íslendingar tóku sig til, klöppuðu í takt og öskruðu Hú! Magnús Magnús lýsti þessari upplifun sinni í dramatísku viðtali við Helga Seljan í Skaupinu og vann hug og hjörtu þjóðarinnar um leið. Fóstbræður sáu um Áramótaskaupið 2016 og var því leikstýrt af Jóni Gnarr, sem sagði síðan frá Magnúsi Magnúsi í viðtali við Cantona þegar franska knattspyrnugoðsögnin var stödd hér á landi í apríl síðastliðnum til að kynna sér íslenska „knattspyrnuundrið.“ „Ég bjó til karakter fyrir áramótaskaupið sem bara náði ekki víkingaklappinu. Hann klappaði alltaf á röngum tíma. Hann heitir meira að segja Magnús Magnús Magnússon,“ sagði Jón og var Cantona mikið skemmt, grenjandi úr hlátri. Hér fyrir neðan má sjá innslagið úr Skaupinu um Magnús Magnús.
Tengdar fréttir Cantona vildi vita meira um litla ísmolann sem rústaði Englandi Eric Cantona gerði myndina The Kings Road sem fjallar meðal annars um íslenska fótboltaundrið. 12. júní 2018 19:30 Heimsókn Cantona til Íslands: Í landi álfa geta ævintýrin orðið að veruleika Fótboltagoðsögnin Eric Cantona kom til Íslands til að reyna að skilja íslenska kraftaverkið. 13. júní 2018 10:00 Mest lesið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning RJ Mitte er látinn Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Össur stendur með sundmönnunum Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Fleiri fréttir „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Sjá meira
Cantona vildi vita meira um litla ísmolann sem rústaði Englandi Eric Cantona gerði myndina The Kings Road sem fjallar meðal annars um íslenska fótboltaundrið. 12. júní 2018 19:30
Heimsókn Cantona til Íslands: Í landi álfa geta ævintýrin orðið að veruleika Fótboltagoðsögnin Eric Cantona kom til Íslands til að reyna að skilja íslenska kraftaverkið. 13. júní 2018 10:00