Sigraðist á brjóstakrabbameini með ónæmismeðferð Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 5. júní 2018 10:31 Verkfræðingurinn Judy Perkins tók þátt í tilraunameðferð og hefur náð fullum bata. Vísir/Getty
Í gær sögðu læknar frá því að kona hefði sigrast á brjóstakrabbameini á tveimur árum, eftir að hafa verið sagt að hún ætti ekki mikið eftir ólifað. Verkfræðingurinn Judy Perkins tók þátt í tilraunameðferð sem notar ónæmiskerfi sjúklingsins til að lækna krabbameinið. Teitur Guðmundsson læknir ræddi þetta mál, ofnæmi og fleira í Bítinu í morgun. „Þarna er verið að nota ónæmismeðferð. Þessi kona er með krabbamein sem er illvígt og búið að reyna ýmislegt.“ Perkins er 52 ára og greindist með krabbamein árið 2003 og voru bæði brjóstin þá tekin. Áratug síðar fékk hún þær fréttir að krabbameinið væri búið að dreifast og hún myndi aðeins lifa nokkur ár í viðbót. Eftir að hefðbundnar meðferðir og krabbameinslyf virkuðu ekki var ákveðið árið 2015 að hún tæki þátt í þessari tilraunameðferð. „Þeir finna í rauninni hjá þessari konu frumur sem að hafa áhrif á þennan æxlisvöxt en líkaminn einfaldlega ekki nægilega sterkur til að framleiða nóg af því svo þeir taka það út úr líkamanum, fjölfalda þessar frumur, gefa þær aftur og frumurnar þá nógu margar til að vinna sitt verk og dreifast um líkamann,“ útskýrir Teitur. Milljörðum frumna var sprautað aftur í líkama hennar auk lyfja sem hafa áhrif á ónæmiskerfið. Árangurinn var sá að tveimur og hálfu ári síðar er hún alveg laus við krabbameinið. Sérfræðingar segja þetta spennandi og áhugaverðar niðurstöður.Samkvæmt frétt BBC segja sérfræðingarnir sem sáu um þessa rannsókn að þrátt fyrir að meðferðin sé á tilraunastigi gæti hún breytt meðferðum á öllum tegundum af krabbameini. Mikil vinna er samt fram undan. „Þetta er það sem er kallað targeted immunotherapy. Við erum búin að vera að gera þetta svona, tilraunir með þetta á ýmsum sviðum og byggir á því að þessar frumur […] sem eru ætlaðar til að drepa í venjulegum tilgangi og eru þarna að drepa æxlisfrumur. Þær þekkja þær og finna þær þar sem þær eru og beita sínum ráðum til þess að merkja þær og síðan drepa þær,“ segir Teitur.Viðtalið við Teit má heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan en þar gefur hann meðal annars góð ráð varðandi ofnæmi.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira