Innlent

Kolbrún og Karl Berndsen efst á lista Flokks fólksins

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Kolbrún Baldursdóttir er efst á listanum.
Kolbrún Baldursdóttir er efst á listanum. Vísir/Sigurjón
Inga Sæland, formaður Flokk fólksins, kynnti framboðslista flokksins í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Flokkurinn býður nú í fyrsta sinn fram á sveitastjórnarstigi.

Kynningin fór fram í Norræna húsinu í dag en Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur leiðir listann. Karl Berndsen hárgreiðslumeistari er í öðru sæti listans. Ásgerður Jóna Flosadóttir skipar þriðja sæti.

Framboðslisti Flokks fólksins:

1. Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur

2. Karl Berndsen, hárgreiðslumeistari

3. Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands

4. Þór Elís Pálsson, kvikmyndaleikstjóri

5. Halldóra Gestsdóttir, hönnuður

6. Rúnar Sigurjónsson, vélvirki

7. Hjördís Björg Kristinsdóttir, sjúkraliði

8. Þráinn Óskarsson, framhaldsskólakennari

9. Friðrik Ólafsson, verkfræðing­ur

10. Birgir Jóhann Birgisson, tónlistarmaður




Fleiri fréttir

Sjá meira


×