Sjálfskipaður sendiherra Guðjón Baldursson skrifar 1. mars 2018 07:00 Opið bréf til Kára Stefánssonar. Ágæti kollega, Ég les stundum pistla þína í Fréttablaðinu. Stundum finnst mér að þú hafir nokkuð til þíns máls. Stundum ekki. Í opnu bréfi þínu til Alþingis Íslendinga hér í Fréttablaðinu 22. febrúar ferð þú mikinn, eins og þinn er háttur. Að þessu sinni sem sjálfskipaður sendiherra Gyðinga á Íslandi. Ekki ómálga barna sem enn í dag sem fyrrum mega þola limlestingar á degi hverjum, heldur fullorðinna Gyðinga sem líta svo á að þeir hafi fullan og óskoraðan rétt til þess að ráðskast með líf og limi barna sinna. Í upphafi bréfs þíns lætur þú þess getið að þú hafir verið prófessor við virtan bandarískan háskóla. Mér er ekki ljóst hvað þessar upplýsingar hafa með málflutning þinn að gera. Ég var um nokkurra ára skeið lektor við læknadeild Háskóla Íslands en hef aldrei verið að bera það á torg með oflæti og trumbuslætti. Að vísu er þetta lítill háskóli í litlu landi og því trúlega ekki eins merkileg vegtylla og sú sem þér hlotnaðist. En leyfist kettinum að líta á kónginn? Mér var líka í æsku innrætt að sýna hógværð og vera lítillátur en ekki dramblátur. Dramb, eða ef menn vilja frekar kalla það stórbokkaskap og stærilæti, er falli næst, segir máltækið. Sjálfhverfa eða sjálfsupphafning er nefnilega ekki talin til dygða, heldur er hún birtingarmynd „narcissism“ sem heitir eftir hinni sjálfumglöðu grísku hetju Narcissusi en hann gat ekki fengið nóg af því að stara á spegilmynd sjálfs sín í vatninu. Donald Trump og Davíð Oddsson eru dæmi um menn í þessum hópi. Þeir þreytast aldrei á að vegsama sjálfa sig og tilbiðja spegilmynd sína fullir lotningar. Ég hygg að það sé þér ekki til vegsauka að ganga í það lið. Þér sæmir miklu frekar að fylla flokk okkar hinna sem aðhyllumst höfuðdyggðirnar sjö: visku, hófstillingu, hugrekki, réttlæti, von, trú og kærleika. Sem drengur las ég töluvert af skrifum hans pabba þíns, Stefáns Jónssonar fréttamanns, eins og hann var jafnan nefndur á mínu heimili. Sá maður var hógvær og vel gerður en ekki oflátungur. Hann var virtur af leikum og lærðum og þurfti ekki að hreykja sér hátt. En samt komst hann þangað sem hann ætlaði sér á tréfætinum. Í pistlinum fyrrgreinda fullyrðir þú að Gyðingar séu „leifturgáfaðir og iðnir“. Þetta heitir á góðri íslensku að draga fólk í dilka eftir þjóðerni. Þetta háttalag minnir óneitanlega á áróður stjórnmálaafls í Þýskalandi á fjórða áratugnum. Áróður sem hafði það sem markmið að útrýma umbjóðendum þínum, Gyðingum. Ég bara spyr: Eru Gyðingar öðrum kynstofnum æðri? Eru þeir „Guðs útvalda þjóð“? Þessi dilkadráttur er ekki í samræmi við Mannréttindasáttmála SÞ og ekki einu sinni við stjórnarskrá BNA. En loksins kem ég mér að efninu: Íslendingar hafa aldrei umskorið sveinbörn. Ég læt mér í léttu rúmi liggja hvaða skoðun Gyðingar hafa á regluverki Íslendinga. Ef þeir vilja búa á Íslandi verða þeir hins vegar að semja sig að háttum okkar hvað þetta varðar. Það er nú bara þannig.Höfundur er læknir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar