Marsspá Siggu Kling – Hrúturinn: Svo mikilvægt að þú haldir ró þinni 2. mars 2018 09:00
Elsku hjartans Hrúturinn minn, þú ert með svo dásamlega fallega útgeislun og það hefur verið þvílíkur hraði kringum þig að það er líkt og rokið á Íslandi hér síðustu daga. Hinn skemmtilegi húmor þinn er að fleyta þér langt og það er stórkostlegur hæfileiki að geta gert grín að sjálfum sér og öðrum. Það er bara svo mikilvægt að þú haldir ró þinni í öllum þessum látum sem eru að eiga sér stað, sleppa því að hafa skoðun á öllu og láttu þig frekar fljóta með. Þolinmæði er ekki þín helsta dyggð en það er eins og þú náir að þjálfir þig í því að halda í hana þennan mánuðinn og hinn næsta. Þetta er ástríðufullur tími sem þú ert að fara inn í og svo mjög mörg tækifæri í ástarlífinu blossa upp á næstunni. Það virðist samt vera að þú elskir frekar að eiga svolítið erfiðan kærasta eða kærustu, því þú nennir ekki að fara auðveldu leiðina og því getur fylgt meiri áhætta á jarðsprengjum og dassi af veseni. Það sem hentar þér best er að hafa maka sem er jarðtengdur, öruggur og er húmoristi, svo ef þér finnst það sé akkúrat að gerast hjá þér þá stökktu til og snaraðu þeirri persónu inn í lífið þitt. Þú ert að fara í tímabil þar sem heppnin verður þér hliðholl og það á við um húsnæði, ástina og ýmiskonar spennandi verkefni. Þú ert að gera breytingar í kringum þig, munt einfalda líf þitt, horfa minna á sjónvarp og taka svo góðar ákvarðanir til þess að láta þér líða betur og um það snýst þetta líf og þú átt eftir að finna að það eru smáu hlutirnir í lífinu sem gera hamingjuna. Sýndu því fólki sem þú þolir alls ekki meiri þolinmæði, gefðu því meiri athygli en það á kannski skilið og þú verður hissa hver útkoman verður. Þú ert að fara inn í mikið ævintýratímabil því þín áramót eru að nálgast þegar þú átt afmæli, svo skoðaðu afskaplega vel hvað er að gerast núna í marsmánuði því hann mun sýna þér breytingar sem á endanum gefa þér kraft eldhugans!Frægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Alda í Handy pandy, naglalistakona, Vala Grand, Hjálmar Forni listamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson, Elín Björnsdóttir, fyrirlesari og kraftaverkakona. Skilaboðin til þín eru: Trúðu á ævintýrin – Eitt lag enn (Stjórnin)
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Fleiri fréttir Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Sjá meira