Innlent

Þessar götur Reykjavíkur verða malbikaðar á árinu

Atli Ísleifsson skrifar
Áætlað er að malbika um 10 prósent af gatnakerfi borgarinnar á þessu ári.
Áætlað er að malbika um 10 prósent af gatnakerfi borgarinnar á þessu ári. Reykjavíkurborg
Borgarráð Reykjavíkur hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út malbikunarframkvæmdir fyrir árið 2018. Alls verða lagðir 43 kílómetrar af malbiki næsta sumar og er kostnaður áætlaður tæpir tveir milljarðar króna. Aldrei hafi verið malbikað jafn mikið í borginni á einu ári.

Í frétt á vef Reykjavíkurborgar segir að um sé að ræða bæði malbikun yfirlaga sem og endurnýjun með fræsingu og malbikun. Kílómetrarnir 43 svara til um 10 prósent af heildarlengd gatnakerfisins í Reykjavík.

Haft er eftir Degi B. Eggertssyni borgarstjóra að framkvæmdirnar séu hluti af átaki í malbikun sem var sett af stað árið 2016.

„Árið 2017 var metár í malbikun en árið 2018 verður ennþá stærra. Við erum við að fara að malbika yfir 10% af gatnakerfinu í heild í öllum hverfum borgarinnar sem ég er mjög ánægður með. Í fyrra fórum við í 30 km og í ár í 43 km þannig að þetta átak er einstakt í sögu borgarinnar að þessu leiti. Þau verkefni sem Vegagerðin fer í bætast svo við þessar tölur en Vegagerðin er þátttakandi í malbiksátakinu,“ er haft eftir Degi.

Götur og götukaflar sem eru í forgangi 2018 eru:

  • Aflagrandi,
  • Arnarbakki,
  • Austurgerði,
  • Álfabakki,
  • Álfaborgir,
  • Álfheimar,
  • Álftahólar,
  • Álftamýri,
  • Árkvörn,
  • Ármúli,
  • Ásasel,
  • Ásendi,
  • Ásgarður,
  • Bakkastaðir,
  • Bakkastígur,
  • Baldursgata,
  • Bankastræti,
  • Básbryggja,
  • Básendi,
  • Birtingakvísl,
  • Bitruháls,
  • Bíldshöfði,
  • Bjargarstígur,
  • Bláskógar,
  • Bleikjukvísl,
  • Blikahólar,
  • Borgargerði,
  • Borgartún,
  • Borgavegur/Gullengi,
  • Bókhlöðustígur,
  • Bólstaðarhlíð,
  • Bragagata,
  • Breiðhöfði,
  • Brekkugerði,
  • Brekkulækur,
  • Bræðraborgarstígur,
  • Bústaðavegur,
  • Bæjarbraut,
  • Bæjarháls,
  • Drekavogur,
  • Dúfnahólar,
  • Dverghamrar,
  • Efstaleiti,
  • Engjateigur,
  • Esjugrund,
  • Eskihlíð,
  • Eskitorg,
  • Fannafold,
  • Faxafen,
  • Fellsmúli,
  • Fjarðarás,
  • Fjörutún,
  • Flúðasel,
  • Flyðrugrandi,
  • Fornistekkur,
  • Fossvogsvegur,
  • Frakkastígur,
  • Fríkirkjuvegur,
  • Frostafold,
  • Funafold,
  • Furumelur,
  • Gaukshólar,
  • Gerðhamrar,
  • Grensásvegur,
  • Grundarhús,
  • Grænlandsleið,
  • Guðrúnargata,
  • Gullengi, 
  • Haðarstígur,
  • Hagamelur,
  • Hamrastekkur,
  • Hamravík,
  • Háahlíð,
  • Háaleitisbraut,
  • Heiðargerði,
  • Heiðarsel,
  • Helgugrund,
  • Hesthúsavegur,
  • Hlemmur,
  • Holtavegur,
  • Hólaberg,
  • Hólavallagata,
  • Hraunbær,
  • Hvammsgerði,
  • Hvassaleiti,
  • Hverfisgata,
  • Höfðabakki,
  • Jöklasel,
  • Jökulgrunn,
  • Jörfabakki,
  • Jörfagrund,
  • Kambsvegur,
  • Kapellutorg,
  • Kaplaskjólsvegur,
  • Katrínartún,
  • Kleppsvegur,
  • Klukkurimi,
  • Klyfjasel,
  • Kringlan,
  • Kvisthagi,
  • Langagerði,
  • Langholtsvegur,
  • Langirimi,
  • Laufásvegur,
  • Laugavegur,
  • Laxakvísl,
  • Lágmúli,
  • Leiðhamrar,
  • Listabraut,
  • Litlagerði,
  • Litlahlíð,
  • Lokinhamrar,
  • Lækjargata,
  • Malarsel,
  • Melbær,
  • Miðhús,
  • Miklabr/Kringlan N-Rampi,
  • Miklabr/Kringlan Sa-Rampi,
  • Nauthólsvegur,
  • Neðstaleiti,
  • Njarðargata,
  • Njálsgata,
  • Norðurás,
  • Norðurfell,
  • Nóatún,
  • Núpabakki,
  • Nönnufell,
  • Rafstöðvarvegur,
  • Rauðagerði,
  • Rauðarárstígur,
  • Reykjanesbr/Breiðholtsbr.,
  • Reykjavegur,
  • Réttarsel,
  • Rofabær,
  • Rósarimi,
  • Salthamrar,
  • Sauðás,
  • Seiðakvísl,
  • Seljabraut,
  • Selmúli,
  • Sigluvogur,
  • Síðusel,
  • Skálholtsstígur,
  • Skeiðarvogur,
  • Skeifan,
  • Skildingatangi,
  • Skipholt,
  • Skothúsvegur,
  • Skógargerði,
  • Skógarsel,
  • Skriðusel,
  • Sléttuvegur,
  • Smárarimi,
  • Smyrilshólar,
  • Smyrilsvegur,
  • Snorrabraut,
  • Sogavegur,
  • Sólheimar,
  • Sóltorg,
  • Sólvallagata,
  • Spítalastígur,
  • Stekkjarbakki,
  • Stigahlíð,
  • Stjörnugróf,
  • Stokkasel,
  • Strandvegur,
  • Straumur,
  • Stuðlasel,
  • Suðurgata,
  • Suðurlandsbraut,
  • Sundlaugavegur,
  • Súðarvogur,
  • Súluhólar,
  • Sæmundargata,
  • Tryggvagata,
  • Tungusel,
  • Tunguvegur,
  • Túngata,
  • Ugluhólar,
  • Urriðakvísl,
  • Vagnhöfði,
  • Vallarás,
  • Vallarhús,
  • Vallengi,
  • Valshólar,
  • Varmahlíð,
  • Vatnsmýrarvegur,
  • Vatnsveituvegur,
  • Veðurstofuvegur,
  • Veghús,
  • Vegmúli,
  • Veiðimannavegur,
  • Vesturás,
  • Vesturberg,
  • Vesturberg,
  • Vesturfold,
  • Vesturlandsv./Grjótháls,
  • Vesturlandsv./Víkurvegur,
  • Viðarás,
  • Viðarhöfði,
  • Viðarrimi,
  • Viðarrimi,
  • Víðihlíð,
  • Víðimelur,
  • Víkurbakki,
  • Víkurvegur,
  • Vínlandsleið,
  • Vonarstræti,
  • Völundarhús,
  • Þingás,
  • Þorragata,
  • Þrándarsel,
  • Þúfusel,
  • Þverársel,
  • Þverás.


Sérstaklega er tekið fram að listinn geti breyst eftir því hvernig göturnar komi undan vetri og eftir ástandsskoðun næsta vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×