Innlent

Fjórir bílar höfnuðu utan vegar í mikilli hálku

Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar
Líkur eru á að tafir verði á umferð á Norðurlandi í dag.
Líkur eru á að tafir verði á umferð á Norðurlandi í dag. Vísir/Vilhelm
Að minnsta kosti fjórir bílar hafa hafnað utan vegar á Norðurlandi eystra frá því seinni partinn í gær. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra á Facebook. Í gærkvöld tók að hlýna í veðri á Eyjafjarðarsvæðinu með tilheyrandi hálku.

Í færslunni kemur fram að flutningabíll hafi farið út af veginum í Ólafsfjarðarmúla í gær og var ökumaður bifreiðarinnar fluttur á heilsugæsluna í Dalvík. Meiðsl hans voru minni háttar.

Þá valt annar flutningabíll í nótt en atvikið átti sér stað á Þjóðvegi 1 í Hörgárdal á móti Neðri-Rauðalæk. Engan sakaði en farmur flutningabílsins, matvara og timbur, dreifðist um talsvert stórt svæði. Að sögn lögreglunnar er verið að hefjast handa við að skipuleggja hreinsunarstarf.

Lögreglan varar við hálku á svæðinu og segir að búast megi við töfum á umferð vegna skilyrðanna.

Hálkan er þó ekki eingöngu til trafala á Norðurlandi. Víða um land eru hálkublettir og sums staðar glerhált. Á vef Vegagerðarinnar er varað við hálku og snjóþekju á vegum. Greiðfært er á helstu leiðum á Suður- og suðvesturlandi en hálka og hálkublettir á útvegum og sums staðar flughált.

Á Vestfjörðum er hálka og snjóþekja og flughált á Ströndum. Með Suð-austurströndinni er þó að mestu greiðfært, þrátt fyrir hálkubletti.

Talsverð hálka er á vegum og gangstéttum víða á höfuðborgarsvæðinu en rignt hefur frá því snemma í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×