Sumarspá Siggu Kling - Steingeitin: Fyrir framan markið þarft þú að skjóta 1. júní 2018 09:00
Elsku Steingeitin mín, ef þú værir ekki til væri ég það ekki heldur. Mínar undirstöður byggjast á Steingeitum, það er ykkur að þakka að ég hef velgengni, svo snúðu þeirri orku sem þú ert að gefa öðrum til þín, ég predika orðið að vera sjálfselskur sem þýðir bara einfaldlega að elska sjálfan sig. Með þeirri tilfinningu laðar þú að þér nýjar brautir sem þú vilt sannarlega vera á, þegar þú hækkar orku þína og ákveður að fara á aðra tíðni sem er eins og fara yfir á aðra rás til að þróa sig betur þá skilurðu að þú ert fæddur leiðtogi, en ekki fylgismaður. En þegar þú ert yngri beygirðu þig oft annarra manna reglum og lætur það móta þig um of. Það er mikilvægt þú sért sjálfstæð við það sem þú vinnur eða gerir og þér sé gefið frelsi við að móta vinnustað þinn eða skóla, því ef svo er ekki dofnar orka þín, kraftur og já útlit og þú gleymist. Það er nákvæmlega sama hvað þú tekur þér fyrir hendur, þú ert alltaf á undan þinni samtíð, taktu þetta skref óhindrað, ekki vanda þig of mikið, lífið er eins og fótboltaleikur, þegar þú ert fyrir framan markið þarftu að skjóta, ekki hugsa! Möguleikarnir sem þú ert að fá núna munu bæði geta fært þér frægð og frama og í framhaldinu þá ást sem þú átt skilið. Þú þarft að hafa maka sem er hörkuduglegur en samt mjög venjulegur, hann þarf að hafa þann hæfileika þér finnist þú vera mikilvægur, því rétt ást er auðveld og einföld og hentar þér best. Þú fyrirlítur leti og gerir þar af leiðandi of miklar kröfur til þín og annarra, en leti getur verið sexý og ég vil benda á að það er heill kafli í bókinni minni Orð eru álög um þann kost að vera pínulítið latur og fá aðra í þau verkefni sem þér leiðast. Þegar ég var á Indlandi á sínum tíma höfðu þau sem ég bjó hjá þrifkonu, sem hafði líka konu sem þreif hjá sér og svo framvegis. Þeim fannst þú ekkert merkilegur ef þú gast ekki ráðið einhvern til að vinna hjá þér. Svo ef prófverkefnin eða annað sem þér finnst erfitt fyrir sjálfan þig, fáðu þá einhvern til að hjálpa hvort sem þú ert lesblindur eða annað eru alltaf aðrir sem geta séð betur og hjálpað þér. Til þess að vera leiðtogi þarftu að finna góða fylgismenn, í því er galdurinn fólginn á þessu sumri. Friður og ást, þín Sigga KlingFrægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir og Davíð Oddsson, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni, Óttar Proppé, Ingveldur Ægissdóttir módir og kvunndagshetja, Hendrika Waage hönnuður, Laddi, Jóhann K. Jóhannsson fréttamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira