Síminn vill aðgang að kerfi Gagnaveitunnar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 18. janúar 2018 07:00 Ljósleiðari á vegum Gagnaveitunnar lagður í Reykjavík 2009. Vísir/GVA „
Það myndi spara fé og einfalda hlutina fyrir neytendur að þetta reiptog verði úr sögunni og menn geti sammælst um að nýta innviðina betur,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Símans, sem á nú í viðræðum við Gagnaveitu Reykjavíkur um aðgang að ljósleiðarakerfum Gagnaveitunnar. „Það sem hefur alltaf steytt á er að við höfum óskað eftir að fá sams konar aðgang að þeirra kerfi eins og við höfum að öllum sveitarfélaganetum á landinu, svokallaður óvirkur eða hrár aðgangur en Gagnaveitan hefur viljað selja okkur heildstæða fjarskiptaþjónustu,“ lýsir forstjóri Símans málinu í hnotskurn.Orri Hauksson, forstjóri Símans. Fréttablaðið/VilhelmOrri sendi stjórn Orkuveitunnar, móðurfélags Gagnaveitunnar, bréf 5. janúar síðastliðinn. Þar ítrekar hann að Síminn sækist ekki eftir bitastraumsaðgangi eins og Gagnaveitan sé enn að bjóða þótt vissulega standi til boða aukinn aðgangur miðað við áður. „Tilboðið mætir hins vegar í grundvallaratriðum ekki framtíðarþörfum Símans né uppfyllir það skilyrði til grósku, nýsköpunar og samkeppni í tækni,“ segir í bréfinu. „Ástæða þess að við höfum ekki náð saman er sem sagt að þeir vilja alltaf selja okkur meira en við viljum kaupa,“ ítrekar Orri. „Þeir nálguðust okkur fyrir jól þótt það væri ekki mikið. Við ætlum sannarlega að reyna að kaupa af þeim vegna þess að langdýrasti hlutinn af svona fastlínukerfum liggur í jarðvegsframkvæmdum. Okkur finnst grátlegt ef það þarf að marggrafa á sama stað.“ Orri minnir á að von sé á nýrri löggjöf á vegum samgönguráðherra sem byggi á tilskipun frá Evrópusambandinu og muni ýta undir að málin fari í þann farveg sem Síminn sækist eftir. „Vonandi leysist málið sem fyrst og þá á viðskiptalegum forsendum á milli félaganna frekar en samkvæmt forskrift frá yfirvöldum. Þetta mun enda vel og annaðhvort gerist það hratt í samvinnu eða seinna og þá byggt á reglusetningu.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira