Formaður HSÍ óljós í svörum um framtíð Geirs Sveinssonar Magnús Ellert Bjarnason skrifar 18. janúar 2018 19:03
Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Geirs Sveinssonar, landsliðsþjálfara karlalandsliðsins í handbolta, eftir lélegt gengi liðsins á yfirstandandi evrópumóti í Króatíu. Líkt og flestum er kunnugt datt liðið úr keppni eftir 29-26 tap gegn Serbíu síðastliðið þriðjudagskvöld. Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, var spurður út í stöðu þjálfaramála í íþróttafréttum Stöðvar 2. „Það sem við munum gera núna er að við förum yfir mótið og metum það. Síðan tökum við ákvörðun um framhaldið." Sögur herma að Guðmundur Þ. Guðmundsson, fyrrum landsliðsþjálfari, sé í myndinni sem næsti þjálfari landsliðsins og beðið verði með ákvörðunina þar til eftir Asíuleikana, sem nú standa yfir í S-Kóreu, en Guðmundur er landsliðsþjálfari Bahrain. Hvað hafði formaður HSÍ að segja um þá orðróma? „Við munum fyrst og fremst núna fara yfir mótið og meta það hvað er best fyrir liðið. Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun og nafn Guðmundar hefur ekkert verið rætt. Við höfum ekki einu sinni kannað það hvort að Guðmundur eða aðrir séu á lausu, þannig að við vitum ekkert um það." Að lokum var Guðmundur spurður hvort það sé vilji HSÍ að Geir Sveinsson haldi áfram sem þjálfari landsliðsins í komandi umspili um sæti á heimsmeistaramótinu. „Samningurinn við Geir var framyfir þetta Evrópumót og það lá alveg fyrir að við myndum fara yfir okkkar mál að því loknu og endurmeta okkar stöðu. Við munum reyna að hraða þeirri vinnu eins og við getum og komast að niðurstöðu. Við þurfum að ræða þetta í stjórninni og landsliðsnefndinni en það er ekki komin nein dagsetning á því."
Mest lesið Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Íslenski boltinn „Heyri í mínum mönnum í FCK“ Fótbolti „Mikil dramatík en verðskuldaður sigur“ Fótbolti Selvén aftur í Vestra Íslenski boltinn „Svekktur og stoltur á sama tíma“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Vllaznia 4-2 | Víkingar áfram eftir framlengingu Fótbolti Orri Sigurður: Ekki eins og heimurinn sé að farast Fótbolti McGregor tapaði áfrýjun og þarf að borga konunni sem hann nauðgaði Sport „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - Silkeborg 2-3 | Akureyringar úr leik Fótbolti Fleiri fréttir Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Sjá meira