Hundur sem ekki reyndist dauður kom í veg fyrir 50 ára afplánun Kristín Ólafsdóttir skrifar 11. september 2018 22:37 Joshua Horner sést hér fyrir miðju ásamt eiginkonu sinni, Kelli Horner, og Steve Wax, lögfræðingi OIP-samtakanna. Mynd/Oregon Innocence Project/Jenny Coleman
Joshua Horner, karlmaður frá Oregonríki í Bandaríkjunum, er nú frjáls ferða sinna og þarf ekki að afplána 50 ára fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn barni. Eitt af sönnunargögnum málsins var hundur, sem Horner átti að hafa drepið, en hundurinn fannst nýlega á lífi. Í frétt BBC um málið segir að stefnandi hafi haldið því fram að Horner hefði skotið hundinn til bana fyrir framan hana. Með hundsdrápinu hafi hann ætlað að koma í veg fyrir að stúlkan segði frá meintum kynferðisbrotum. Horner hlaut 50 ára dóm í fyrra fyrir brotin gegn stúlkunni en kviðdómur var ekki sammála um sekt hans á sínum tíma. Samtökin Oregon Innocence Project, sem hafa það að markmiði að forða saklausum frá afplánun, hófu rannsókn á máli Horners og gerðu formlega athugasemd við dóminn yfir honum í apríl síðastliðnum. Rannsókn samtakanna leiddi í ljós að umræddur hundur, labradortíkin Lucy, var alls ekki skotin til bana heldur naut hún lífsins - og nýtur enn - hjá nýjum eigendum. Horner hafði alltaf haldið því fram að Lucy væri á lífi. Þá hefur verið reynt að ná tali af meintum þolanda Horners en hún hefur ekki látið sjá sig á fundum sem hún hefur verið boðuð á. Í frétt AP-fréttaveitunnar um málið segir einnig að hún hafi hlaupið á brott þegar starfsfólk saksóknara hafði upp á henni og reyndi að nálgast hana.
Bandaríkin Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira