Dagur vakti sína menn þegar útlitið var svart og þeir náðu í mikilvægt stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. ágúst 2018 14:45 Dagur Sigurðsson. Vísir/Getty
Japanska handboltalandsliðið náði að vinna sig út úr erfiðri stöðu í fyrsta leik sínum í milliriðli á Asíuleikunum í handbolta í dag og tryggja sér 26-26 jafntefli við Sádi-Arabíu. Japanir litu út fyrir að vera jafnvel að kasta frá sér möguleikanum að komast í undanúrslitin um miðjan seinni hálfleik en íslenski þjálfarinn þeirra var ekki á því að gefast upp. Dagur Sigurðsson þjálfar japanska landsliðið en liðið mátti alls ekki tapa þessum leik. Japan og Sádi-Arabía eru keppa líklegast um það að fylgja Katar í undanúrslitin. Útlitið var mjög svart fyrir Japan um miðjan seinni hálfleik þegar Japanir voru komnir fimm mörkum undir (21-16). Dagur tók þá leikhlé á góðum tíma og japanska liðið náði að snúa leiknum við og komast í 24-23. Sádarnir komust aftur tveimur mörkum yfir, 26-24, en aftur náði Japan að jafna eftir gott leikhlé hjá Degi. Hvorugt liðið náði að skora eftir það og jafntefli varð því niðurstaðan. Katar vann Írak 26-20 fyrr í dag og hafði unnið leiki sína í riðlinum með miklum yfirburðum þar á meðal þann fyrsta á móti Malasíu 64-11. Katar er með tvö stig en Japan og Sádi-Arabía eitt stig hvort. Markatala um því líklega ráða til um hvort Japan eða Sádi-Arabía komast í undanúrslitin nema ef að Írakar ætli að blanda sér eitthvað inn í baráttuna í næstu leikjum. Næsti leikur hjá Japan er á móti Írak en á sama tíma spilar Sádi-Arabía við Katar. Japan spilar síðan við Katar í lokaumferðinni á sama tíma og Írakar mæta Sádum.
Handbolti Mest lesið Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Íslenski boltinn „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Íslenski boltinn Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Enski boltinn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ Handbolti Harmsaga Mudryk heldur áfram Enski boltinn Nýr Camp Nou míglekur Fótbolti Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Fótbolti Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Íslenski boltinn Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Enski boltinn Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Golf Fleiri fréttir Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur „Var ekki langt frá því að tárast“ Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Sjá meira