Jóhann Berg lagði upp mark Burnley sem féll úr leik gegn C-deildarliði Anton Ingi Leifsson skrifar 25. september 2018 20:40 Jóhann og félagar fagna markinu í kvöld. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp mark Burnley sem datt úr enska deildarbikarnum fyrir C-deildarliðinu Burton Albion. Lokatölur 2-1 sigur Burton. Hornspyrna Jóhanns endaði beint á kollanum á Kevin Long sem stangaði boltann í netið og kom Burnley yfir á 40. mínútu en Burnley var 1-0 er flautað var til hálfleiks. Mörk Liam Boyce og Jamie Allen í síðari hálfleik gerðu það hins vegar að verkum að leik Burnley í Carabao-Cup þetta árið er lokið en Jóhann Berg spilaði allan leikinn fyrir Burnley. Manchester City er hins vegar komið áfram eftir 3-0 sigur á Oxford á útivelli. Gabriel Jesus, Riyad Mahrez og gutinn Phil Foden skoruðu mörk City; Jesus í fyrri hálfleik en þeir Mahrez og Foden í þeim síðari. Fulham kláraði Millwall nokkuð auðveldlega, 3-1. Joe Bryan og Luca de la Torre komu Fulham í 2-0 áður en heimamenn minnkuðu muninn. Cyrus Christe innsiglaði svo sigur Fulham. Bournemouth þurfti sigurmark frá Callum Wilson í uppbótartíma til að slá út Blackburn en lokatölur urðu 3-2 sigur Bournemouth sem komst 2-0 yfir í leiknum. Norwich vann 4-3 sigur á Wycombe í markaleik en Norwich komst í 4-1 í leiknum. Blackpool sló út QPR, 2-0 með mörkum frá Jay Spearing og Armand Gnanduillet.Úrslit kvöldsins: Bournemouth - Blackburn 3-2 Blackpool - QPR 2-0 Burtion - Burnley 2-1 Millwall - Fulham 1-3 Oxford - Man. City 0-3 Preston - Middlesbrough 2-2 (Middlesbrough áfram eftir vítaspyrnukeppni) Wolves - Leicester 0-0 (Leicester áfram eftir vítaspyrnukeppni) Wycombe - Norwich 3-4
Fótbolti Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fleiri fréttir Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira