Mikið gekk á í verkinu þegar þetta gerðist og áttuðu hvorki leikarar né áhorfendur sig á því að eitthvað hefði komið upp á að sögn leikhússtjórans. Þegar hugað var að Birnu í hléi kom hins vegar í ljós að hún hafði hlotið skurð á vörina sem hafði bólgnað mikið og var því ákveðið að hætta sýningu.
Kristín Eysteinsdóttir er leikhússtjóri Borgarleikhússins en hún segir að ákveðið hefði verið að senda starfsmann fram í hléi til að tilkynna áhorfendum að stöðva þyrfti sýninguna vegna meiðsla sem leikara hafði hlotið.

Kristín segir áhorfendur því hafa átt bágt með að trúa orðum starfsmannsins þegar hann tilkynnti þeim að stöðva þyrfti sýninguna vegna óhapps.
„Þau trúðu því ekki í fyrstu og héldu að þetta væri grín sem væri hluti af sýningunni. Það eru kannski broslegar hliðar á þessu að því leytinu,“ segir Kristín.

Kristín segir Birnu Rún hafa sýnt af sér mikla seiglu með því að halda leik sínum áfram. „Hún kannski gerði sér ekki grein fyrir því sjálf að hún hefði fengið svona mikið högg á munninn,“ segir Kristín.
Hún segir að gert sé ráð fyrir að sýningar muni halda áfram samkvæmt plani með Birnu í leikhópnum og að áhorfendum sem voru á sýningunni i kvöld verði að sjálfsögðu boðið að koma á sýningu síðar.