Gunnar Steinn magnaður í sigri Ribe | Heil umferð í Danmörku Anton Ingi Leifsson skrifar 5. desember 2018 20:16 Gunnar Steinn var frábær í kvöld. vísir/getty
Heil umferð fór fram í danska handboltanum í kvöld og þar voru margir Íslendingar í eldlínunni. Mörg íslensk mörk litu dagsins ljós og þó nokkrar stoðsendingar í leikjum kvöldsins. Vignir Svavarsson gerði þrjú mörk úr þremur skotum er TTH Holstebro gerði jafntefli, 28-28, við Nordsjælland á heimavelli en Nordsjælland jafnaði metin rúmri mínútu fyrir leikslok. Eftir jafnteflið er TTH í fjórða sæti deildarinnar með 21 stig en Nordsjælland er í ellefta sætinu með níu stig. Ribe-Esbjerg vann mikilvægan fjögurra marka sigur, 30-26, á Bjerringbro-Silkeborg en eftir sigurinn er Ribe-Esbjerg komið upp að hlið KIF Kolding með tíu stig í níunda til tíunda sæti deildarinnar. Rúnar Kárason skoraði tvö mörk úr fjórum skotum og gaf tvær stoðsendingar fyrir Ribe en Gunnar Steinn Jónsson var stórkostlegur. Hann skoraði átta mörk og gaf sex stoðsendingar. Ólafur Gústafsson skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum og var næst markahæstur hjá KIF Kolding sem tapaði með sjö mörkum fyrir Århus á útivelli, 28-21. Skjern vann sjö marka sigur á Mors-Thy, 33-26, en Bjögrvin Páll Gústavsson varði eitt af tveimur vítaskotum sem hann reyndi við. Tandri Már Konráðsson var ekki í leikmannahóp Skjern sem er í sjöunda sætinu. GOG er áfram í öðru sætinu eftir 27-24 sigur á Ringsted á heimavelli en Óðinn Þór Ríkharðsson átti flotttan leik í vinstra horninu hjá GOG. Hann skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði þrjú mörk og gaf eina stoðsendingu er SönderjyskE tapaði með þremur mörkum á útivelli gegn Lemvig-Thyborøn, 30-27. SönderjyskE er í áttunda sætinu. Álaborg tapaði mikilvægum stigum í toppbaráttunni er þeir töpuðu á heimavelli fyrir Skanderborg, 29-25. Þeir eru nú með eins stigs forskot á GOG. Ómar Ingi Magnússon gerði eitt mark og gaf fimm tsoðsendingar en Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk. Að auki gaf hann eina stoðsendingu.
Handbolti Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærissveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira