Framboðslisti xD sagður sem B-mynd með Steven Seagal Jakob Bjarnar skrifar 23. febrúar 2018 14:19 Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir minna Gunnar Smára á B-mynd með Steven Seagal. visir/anton brink
Gunnar Smári Egilsson, talsmaður Sósíalistaflokks Íslands, gefur ekki mikið fyrir framboðslista Sjálfstæðisflokksins í borginni, eins og hann lítur út eftir að hafa verið samþykktur á fulltrúaráðsfundi í gær. „Miðaldra og gamlir karlar og ungar konur. Eins og B-mynd með Steven Seagal. Eitt einkenni karlrembuklúbba eins og Sjálfstæðisflokkurinn er, er að konum er hent þegar þær öðlast reynslu og styrk. Karlarnir velja konurnar á listann, konurnar ráða í raun engu. Þeim er skipt út um leið og þær öðlast reynslu og styrk. Í þingkosningunum var að það Bjarni Ben og Áslaug (30 ára aldursmunur) og í borginni verður það Eyþór og Hildur (23 ára aldursmunur), u.þ.b. það sem sjá má í hasarmyndum,“ segir Gunnar Smári á Facebooksíðu sinni. Ekki urðu eins mikil átök á fulltrúaráðsfundinum og vænta mátti. En, þó verulegan skjálfta megi greina innan flokks vegna þess að þeim Áslaugu Friðriksdóttur og Kjartani Magnússyni var ýtt til hliðar, þá er það kannski fyrst og fremst skjálfti vegna ótta við innaflokksátök. Í því ljósi og eftir á að hyggja þarf ekki að koma svo mjög á óvart að listinn hafi verið samþykktur samhljóða.Gunnar Smári telur það lýsandi að á milli þeirra Bjarna og Áslaugar Örnu er þrjátíu ára aldursmunur.visir/vilhelmSósíalistaflokkurinn stefnir á að bjóða fram lista í komandi sveitarstjórnarkosningum og samkvæmt heimildum Vísis munu þeir listar liggja fyrir í lok næsta mánaðar. Ekki er við því að búast að Gunnar Smári mæti til leiks sem James Bond með ungan kvenkyns sósíalista sér við hlið til þeirrar rimmu, ef marka má orð hans. Gunnar Smári heldur áfram í að greina stöðuna á síðu sinni, en hann vill meina að þetta lögmál hasarmyndanna eigi ekki bara við um Sjálfstæðisflokkinn. Heldur sé um að ræða einskonar allsherjarlögmál foringjaræðis sem eigi við um flokkakerfið í heild sinni. „VG hefur hreinsað burt allar eldri konur úr forystunni. En það á líka við um karlanna. VG er mjög gott dæmi um hvernig klíkur verða eins og foringjarnir á skömmum tíma. Eftir nokkur ár verður þetta hópur fólks þar sem enginn er eldri en sjö árum eldri og enginn yngri en sjö árum yngri en Katrín.“
Tengdar fréttir Stefnir í mikinn átakafund í Valhöll Tekist verður á um tillögu uppstillinganefndar á eftir. 22. febrúar 2018 15:48 Listi kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík samþykktur óbreyttur Fundi Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, er lokið. 22. febrúar 2018 18:17 Fundinum í Valhöll seinkaði vegna góðrar mætingar Fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík seinkaði um korter í dag vegna gríðarlegrar góðrar mætingar. 22. febrúar 2018 17:52 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira
Stefnir í mikinn átakafund í Valhöll Tekist verður á um tillögu uppstillinganefndar á eftir. 22. febrúar 2018 15:48
Listi kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík samþykktur óbreyttur Fundi Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, er lokið. 22. febrúar 2018 18:17
Fundinum í Valhöll seinkaði vegna góðrar mætingar Fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík seinkaði um korter í dag vegna gríðarlegrar góðrar mætingar. 22. febrúar 2018 17:52