Starfsvenja afrekssjóðs að rökstyðja ekki Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 13. janúar 2017 07:00 Andri Stefánsson, Guðmundur Águst Ingvarsson, Lárus Blöndal og Líney Rut Halldórsdóttir þegar úthlutanir úr Afrekssjóðnum voru kynntar. vísir/vilhelm
Afrekssjóður ÍSÍ úthlutaði í síðustu viku 150 milljónum til íþróttasambanda sinna og vakti athygli að á bak við hverja upphæð liggur sama röksemdafærslan: „Vegna landsliðsverkefna og fræðslu og fagteymis fyrir afrekshópa.“ Sjóðurinn hefur gildnað mikið undanfarin ár, hann úthlutaði 55 milljónum árið 2013, en verður orðinn 400 milljónir árið 2020. Sjóðurinn var fjórfaldaður síðasta sumar af þáverandi ríkisstjórn. Formaður Afrekssjóðsins, Guðmundur Ágúst Ingvarsson, segir að það sé viðtekin venja að rökstyðja ekki úthlutanir sjóðsins. „Það er yfirleitt ekki verið að færa rök fyrir úthlutunum, samanber listamannalaun og annað slíkt. Reglurnar eru skýrar og við fórum eftir þeim. Það var ekki brugðið frá þeim á neinn hátt.“ Fimleikasamband Íslands hefur ítrekað óskað eftir gagnsæi og rökstuðningi við úthlutanir úr Afrekssjóði ÍSÍ en komið að lokuðum dyrum. Síðasta svar sambandsins sem það fékk frá sjóðnum var svohljóðandi: „Stjórn Afrekssjóðs ÍSÍ hefur frá upphafi fylgt þeirri meginreglu að einstaka úthlutanir eru ekki rökstuddar frekar.“ ÍSÍ er að smíða nýjar reglur um úthlutunina og var úthlutunin fyrir viku sú síðasta sem gerð var eftir því regluverki sem nú er í gildi. Vinnuhópur á að skila af sér tillögum fyrir 1. mars og verða reglurnar væntanlega til umræðu og samþykktar á Íþróttaþingi ÍSÍ í maí. „Nýju reglurnar eru til að setja skýrari línur um hvernig á að úthluta. Það er verið að vanda sig enn þá frekar við úthlutun á hærri upphæðum,“ segir Guðmundur. Nokkur sérsambönd hafa gagnrýnt að KSÍ hafi fengið tæpar níu milljónir króna fyrir verkefni kvennalandsliðsins. Í reglum Afrekssjóðsins stendur að við úthlutanir skuli taka sérstakt tillit til þess ef viðkomandi sérsamband hafi fengið beina styrki frá hinu opinbera eða öðrum aðilum. KSÍ fékk rúma tvo milljarða fyrir árangur landsliðsins á Evrópumótinu í Frakklandi. Aðspurður hvort EM-peningarnir hafi komið til lækkunar á styrk KSÍ segir Guðmundur: „Ég get því miður ekki og má ekki ræða ákveðnar úthlutanir.“ Aðspurður hvað banni honum að ræða slíkt segir hann: „Þetta hefur verið starfsreglan og mér sýnist sú starfsregla vera við fleiri sjóði.“ Töluverð gagnrýni kom í kjölfar úthlutunarinnar í síðustu viku og sagði Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, í fréttum Stöðvar 2 að við úthlutanir væru stundum teknar ákvarðanir sem byggðust á huglægu mati. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira