
KÞBAVD og skátavagninn
Í fyrsta sæti lenti tillaga Lenu Margrétar Aradóttur um KÞBAVD „konur þurfa bara að vera duglegri“ vagninn. Snilldar frasi og kaldhæðin ádeila á þau fjölmörgu skipti sem við konur upplifum kröfur samfélagsins um að við hegðum okkur eða lítum öðruvísi út en við gerum til að við verðum ekki fyrir misrétti. Breytinga er þörf.
Í öðru sæti lenti tillaga Jakobs Guðnasonar um MOOT 2017 skátavagninn. Um er að ræða stærsta skátamót Íslandssögunnar þar sem yfir fjögur þúsund 18-25 ára skátar og þúsund eldri frá yfir 100 þjóðlöndum koma saman. Breytingar, eða Change – Inspired by Iceland, er þema skátamótsins. Hver og einn hefur sett sér persónuleg markmið um það sem hann ætlar að læra og gera á Íslandi og nýta til að breyta og bæta samfélagið í eigin landi.
Mótssetning er í Laugardalnum 25. júlí og verða þátttakendur fluttir í sjálfbær fjölþjóðleg samfélög skáta í Reykjavík, Akureyri, Hafnarfirði, Þingvöllum, Skaftafelli, Heimalandi, Vestmannaeyjum, Selfossi, Akranesi, Hveragerði og í Hólaskjóli. Á hverjum stað er fjölbreytt dagskrá og munu skátarnir gefa ígildi 20.000 vinnustunda við samfélags- og umhverfisþjónustu líkt og göngustígagerð og hreinsun stranda. Allir sameinast loks á Úlfljótsvatni og er mótinu slitið 2. ágúst.
Síðustu þrjú ár hafa yfir 100 Íslendingar undirbúið mótið og hafa margir bæst við á lokametrunum. Fjölmargar áskoranir hafa verið við skipulagninguna, enda verkefnið stórt og markmiðið að gera upplifun skátanna einstaka. Öryggis- og heilbrigðismál hafa verið undirbúin í mínum hópi og hafa Slysavarnafélagið Landsbjörg og Rauði krossinn reynst öflugir samstarfsaðilar.
Auk allra sjálfboðnu vinnustundanna, eru áætlaðar gjaldeyristekjur af mótinu yfir tveir milljarðar króna. Brátt verða farnar 650 rútuferðir með skáta á milli landsvæða, ásamt öllu því sem þarf til að byggja skátasamfélög íbúa frá mismunandi menningarheimum. 240 tjöld sem þola vind og mikla úrkomu. Halal, kosher, vegan, glútenlaust og grænmetisfæði sem eldað verður í 400 pottum á 120 eldavélum.
Þátttakendur MOOT 2017 munu einnig ferðast um landið á eigin vegum og styttist því í að þið, lesendur góðir, farið að rekast á glaða og fróðleiksfúsa skáta frá öllum heimshornum. Þá þyrstir í að læra eitthvað nýtt og spennandi um land og þjóð. Verið viðbúin!
Skoðun

Nokkur orð um Kúbudeiluna og viðskiptabannið
Gylfi Páll Hersir skrifar

Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Gróf misbeiting illa fengins valds
Örn Sigurðsson skrifar

Að sækja gullið (okkar) grein 2
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir
Davíð Aron Routley skrifar

Pólítískt hugrekki
Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar

Vísir að lægri orkureikningi
Einar Vilmarsson skrifar

Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld
Ögmundur Jónasson skrifar

Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur
Margrét Kristín Blöndal skrifar

Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt
Ian McDonald skrifar

Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar?
Bogi Ragnarsson skrifar

Vönduð vinnubrögð?
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð
Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar

Veitingastaðir eru ekki kjarnorkuver
Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Nýr vegvísir Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna
Clara Ganslandt skrifar

Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar
Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar

Blaður 35
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Kaldar kveðjur frá forsætisráðherrra til ferðaþjónustunnar
Pétur Óskarsson skrifar

Nú hefst samræmt próf í stærðfræði
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar

Rangfærslur Viðskiptaráðs
Finnbjörn A. Hermannsson skrifar

Sanngirni í Kópavogsmódelinu
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ríkisstjórnarflokkarnir fylgja Landsvirkjun – gegn Þjórsárverum
Svandís Svavarsdóttir,Álfheiður Ingadóttir skrifar

Skapandi framtíð – forvarnir og félagsstarf í Hafnarfirði
Kristín Thoroddsen skrifar

Upplýsingar um mataræði barna og unglinga á landsvísu eru of gamlar – það er óásættanlegt
Birna Þórisdóttir,Sigurbjörg Bjarnadóttir,Inga Þórsdóttir skrifar

Hvaða orka?
Birgir Sverrisson skrifar

Það skiptir máli hvernig gervigreind er notuð í kennslu
Hjörvar Ingi Haraldsson skrifar

Friðum Eyjafjörð
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar

Sóknaráætlanir landshlutanna – lykillinn að sterkara Íslandi
Páll Snævar Brynjarsson,Sigríður Ó. Kristjánsdóttir,Sveinbjörg Rut Pétursdóttir,Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,Bryndís Fiona Ford,Ingunn Jónsdóttir,Berglind Kristinsdóttir,Páll Björgvin Guðmundsson skrifar

Eflum samstöðuna á kvennaári – Stöndum vörð um mannréttindi
Kristín Ástgeirsdóttir skrifar