Hafnfirðingar bíða enn úrbóta á stórslysakafla Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 12. janúar 2017 07:00 BMW-bifreið á leið vestur skall á tveimur flutningabílum. Á stuttum vegarkafla hafa 12 slys orðið að meðaltali á síðustu fimm árum. vísir/vilhelm
Tveir mjög harðir árekstrar urðu á mánudag á Reykjanesbraut við Strandgötu. Þrír voru fluttir á sjúkrahús og er einn talinn alvarlega slasaður. Þetta er enn eitt slysið sem hefur orðið á aðeins tveggja kílómetra kafla sem nær frá Krísuvíkurgatnamótum að rampi frá Reykjanesbraut niður að Strandgötu. Samkvæmt tölfræði sem Samgöngustofa tók saman hafa þar orðið 62 slys á síðustu fimm árum en ekki eru komin gögn fyrir slys sem þarna urðu frá nóvember og desember á síðasta ári. Um 10 þúsund bílar fóru þarna um á mánudag samkvæmt teljara Vegagerðarinnar, og var þó vegurinn lokaður í nokkurn tíma vegna slyssins.Margrét Gauja MagnúsdóttirÍ samgönguáætlun er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist við mislæg gatnamót við Krýsuvíkurveg í ár. Þar er einnig gert ráð fyrir að tvöfalda Reykjanesbraut frá Kaldárselsvegi suður í Hvassahraun á fyrsta og öðru tímabili en samgönguáætlun nær til ársins 2022. Á aðalskipulagi Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir færslu brautarinnar við álverið í Straumsvík. Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, segir að bærinn hafi tekið frá peninga til að standa straum af kostnaði við gerð mislægu gatnamótanna. „Þarna verður að fara í framkvæmdir á þessu ári því annars endar þetta með stórslysi. Ég fæ alltaf sting í hjartað þegar það verður bílslys í bænum og sérstaklega á þessum gatnamótum sem hafa verið umdeild svona lengi og bæjarbúar hafa öskrað á aðgerðir í mörg ár. Ég vona svo innilega að fólkið sem þarna slasaðist sé í lagi.“ Margrét segir að bærinn hafi ályktað í mörg ár um úrbætur á Reykjanesbrautinni og í kjördæmavikum með þingmönnum sé þetta mál númer eitt á dagskrá. „Við höfum verið að leggja áherslu á þetta mál því það þarf að kýla þetta í gegn. Umferðin um Reykjanesbrautina hefur margfaldast með ferðamönnum og það það þarf að hafa þennan kafla í lagi,“ segir Margrét Gauja. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Sjá meira