Tölvuþrjótar réðust á tugi kjarnorkuvera í Bandaríkjunum Kjartan Kjartansson skrifar 7. júlí 2017 21:49 Wolf Creek-kjarnorkuverið í Burlington í Kansas varð meðal annars fyrir tölvuinnbroti. Vísir/Getty
Bandaríska leyniþjónustan telur að tölvuþrjótar hafi brotist inn í tölvukerfi fyrirtækja sem reka tugi kjarnorkuvera frá því í maí. Í skýrslu um innbrotin er áyktað að erlend ríki, mögulega Rússland, hafi staðið að þeim. Ekkert bendir til þess að tölvuþrjótarnir hafi komist í stjórnkerfi orkuveranna en þeir sendu háttsettum verkfræðingum hjá fyrirtækjunum tölvupósta sem litu út eins og starfsumsóknir sem spilliforrit voru falin í. Í skýrslu heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna sem New York Times hefur fengið aðgang að kemur fram að tölvuþrjótarnir hafi meðal annars komist inn í tölvukerfi fyrirtækis sem rekur Wolf Creek-kjarnorkuverið í Kansas. Fyrirtækið staðfestir ekki innbrotið en segir að rekstrarkerfi orkuversins hafi ekki orðið fyrir neinum áhrifum. Í yfirlýsingu alríkislögreglunnar FBI og heimavarnaráðuneytis segir að almannahætta hafi ekki skapast af árásunum.Líkist fyrri árásum rússneskra hakkaraEkki liggur fyrir hvað tölvuþjótunum gekk til með innbrotunum en útlit er fyrir að þeir hafi verið að kortleggja tölvukerfin fyrir árásir síðar meir. Sérfræðingar í tölvuöryggi segja bandaríska blaðinu að tæknin sem var notuð líkist þeirri sem rússneskir hakkarar hafi notað í árásum á orkufyrirtæki. Bandarísk yfirvöld sökuðu Rússa meðal annars um að standa að baki árás sem olli rafmagnsleysi í Úkraínu fyrir tveimur árum.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira