Fyrrverandi starfsmaður Landsbankans ákærður fyrir tug milljóna króna fjárdrátt Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. júní 2017 11:17 Konan starfaði í höfuðstöðvum Landsbankans í Austurstræti. Vísir/Andri Marínó
Héraðssaksóknari hefur ákært konu á sextugsaldri fyrir tug milljóna fjárdrátt á meðan hún starfaði á fjármálasviði Landsbankans. Málið verður þingfest á morgun en Vísir sagði fyrst frá því í nóvember á síðasta ári. Þá hafði konan verið rekin frá bankanum. Alls nemur upphæðin um 33,5 milljónum króna en samkvæmt ákæru hófst fjárdrátturinn í desember 2013 og lauk ekki fyrr en í september á síðasta ári. Í fyrsta lið ákærunnar er konan sökuð um að hafa að hafa millifært um 11,7 milljónir króna frá því í desember 2013 til nóvember 2014 af bankareikningi Landsbankans og yfir á bankareikning eiginmanns hennar sem nú er látinn. Lét konan líta út fyrir að Landsbankinn og Reykjavíkurborg væru að greiða kröfur til eiginmannsins en kröfurnar voru tilhæfulausar að því er segir í ákæru. Annar liður ákærunnar snýr að 21,8 milljónum króna sem konan millifærði af reikningi bankans og yfir á reiknings eiginmannsins en hann var látinn. Þessi brot voru framin frá því í mars 2015 og þar til í september í fyrra en konan lét líta út fyrir að að ýmis fyrirtæki og stofnanir væru að greiða kröfur til mannsins hennar. Kröfurnar voru hins vegar tilhæfulausar. Þá er konan jafnframt ákærð fyrir peningaþvætti auk þess sem Landsbankinn krefst skaðabóta frá henni að þeirri upphæð sem hún er ákærð fyrir að stela auk vaxta.
Tengdar fréttir Reyndur starfsmaður Landsbankans kærður fyrir fjárdrátt Upphæðin nemur á fjórða tug milljóna króna. 29. nóvember 2016 00:01 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Reyndur starfsmaður Landsbankans kærður fyrir fjárdrátt Upphæðin nemur á fjórða tug milljóna króna. 29. nóvember 2016 00:01