Hollensku stelpurnar björguðu stiginu í blálokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2017 18:29 Hollensku stelpurnar náðu í stig. Vísir/Getty
Holland og Serbía gerðu jafntefli í fjórðu umferð riðlakeppni heimsmeistarakeppni kvenna í handbolta en í dag var leikið í C- og D-riðli. Rússar eru enn með fullt hús en sluppu með skrekkinn á móti Japan. Það leit allt út fyrir sigur Serba sem voru 27-24 yfir þegar fimm mínútur voru eftir. Hollensku stelpurnar skoruðu hinsvegar þrjú síðustu mörkin í leiknum og tryggðu sér jafntefli. Nycke Groot skoraði jöfnunarmarkið þegar fjórar sekúndur voru eftir. Þýsku stelpurnar töpuðu sínu fyrsta stigi í jafntefli á móti Serbíu í gær en komust aftur á sigurbraut með fimmtán marka stórsigri á Kína í dag, 24-9. Þýska liðið er í efsta sæti riðilsins fyrir lokaumferðina. Þýskaland, Serbía, Suður-Kórea og Holland eru öll búin að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum en lið Kamerún og Kína eru úr leik. Rússar hafa unnið alla leiki sína en lentu í basli með Japan. Japönsku stelpurnar unnu Svartfjallaland í gær og töpuðu bara með einu marki á móti toppliði Rússlands í dag, 29-18. Japanska liðið komst yfir í fyrri hálfleik eftir 5-0 kafla en Rússar voru 13-11 yfir í hálfleik og lengstum með frumkvæðið. Sigurinn var ekki í jafnmikilli hættu og úrslitin gefa tilefni til því Japan skoraði tvö síðustu mörk leiksins. Það er ennþá mikil spenna í riðlinum. Rússar eru komnir áfram enda með fullt hús en dönsku stelpurnar geta einnig tryggt sig áfram seinna í kvöld. Svartfjallaland var búið að tapa tveimur leikjum í röð en vann skyldusigur á Túnis í dag, 29-23.Úrslit á HM kvenna í handbolta í dag:C-riðill Rússland - Japan 29-28 Túnis - Svartfjallaland 23-29 Danmörk - Rússland Í kvöldStig þjóða: Rússland 8, Svartfjallaland 4, Danmörk 4, Brasilía 3, Japan 3, Túnis 0.D-riðill Kamerún - Suður Kórea 21-33 Serbía - Holland 27-27 Þýskaland - Kína 24-9Stig þjóða: Þýskaland 7, Serbía 6, Suður-Kórea 6, Holland 5, Kamerún 0, Kína 0.
Handbolti Mest lesið „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira