Hraðlest: töfralausn? Haraldur Sigþórsson og Inga María Árnadóttir skrifar 26. júlí 2017 15:00 Umferðin er samhangandi kerfi margra samgöngumáta: gangandi, hjólandi og akandi. Hvort sem fólk kýs að ferðast saman eða sitt í hvoru lagi þarf að greiða götur þess og tryggja að sem flestir valkostir séu í boði. Með því að beina öllum í ákveðinn farveg er gert ráð fyrir því að ein lausn henti öllum. Eins og hægt sé að leysa flókinn vanda með einfaldri lausn. Áformin, eða réttara sagt hugmyndirnar, um að ráðast í framkvæmdir á hraðlest til Keflavíkur, minna um margt á þær lausnir sem fólk sækist gjarnan í til þess að grennast hratt. Megrunarlyf eða magaaðgerðir geta mögulega hjálpað upp að vissu marki, en flestir vita að tímabundnar lausnir duga skammt. Bestur árangur næst með þegar tekið er á vandanum frá mörgum hliðum. Það sama mætti segja um hraðlestina. Hún birtist sem einföld og skjót lausn, en í stað þess að líta á málið heildrænt og taka á mismunandi þáttum er aðeins horft til einnar lausnar sem tekur aðeins á hluta vandans.Ofmat á framtíðarnotkunÍ skýrslu um hraðlestina miða arðsemisútreikningar við að 50% komufarþega í Leifstöð muni nota lestina, auk þess sem tekið er mið af spám sem gera ráð fyrir áframhaldandi aukningu ferðamanna um langa tíð. Einkar varasamt er að fylgja slíkri spá þegar nú þegar virðist vera farið að hægja á fjölgun ferðamanna til landsins. Því er óhætt að segja að fjöldi væntanlegra farþega sé verulega ofmetinn, nema þvingunaraðgerðum verði beitt. Stærsti hluti ferðamanna mun áfram kjósa að taka bílaleigubíl strax, enda er áfangastaður landið allt, en ekki höfuðborgarsvæðið. Þá mun flugrútan áfram gagnast mörgum sem vilja ferðast beint upp að hóteli sínu í einni ferð og enn fleiri munu áfram kjósa að láta vini og ættingja sem þeir hafa ekki séð lengi sækja sig í flugstöðina. Til þess að sýna fram á hagkvæmni lestarinnar er því gengið út frá óraunhæfum fjölda farþega sem mun nýta sér hana og því erfitt að sjá hvernig lestin á að geta staðið undir sér.OkurverðVerðið í lestina virðist ráðgert sem 1000-5000 kr á farþega. Verðið hefur verið á reiki en fer hækkandi því lengra sem líður frá útgáfu skýrslunnar árið 2014 og stefnir í að verða allt of hátt gjald. Fjölskyldur myndu t.d. alltaf frekar kjósa bílaleigubíl. Lest verður því einfaldlega ekki heldur samkeppnisfær vegna verðsins. Þá er stofnkostnaður við lestina gríðarlegur en uppbygging lestarkerfis í lestarlausu landi verður alltaf mjög dýr. Öll þekking er aðkeypt, sem og varahlutir. Munur er á ýmsum atriðum frá einu landi til annars og því er hætt við að rekstur lestarinnar verði þ.a.l. stjórnað af kaupum frá einu landi. Það gerir samkeppni erfiða því að seljandinn gæti auðveldlega keyrt upp verðið á sölunni hingað til lands.Lest fyrir hverja?Byggð á höfuðborgarsvæðinu er dreifð og erfitt er að finna þar miðju eða miðpunkta. Ef lestin myndi t.d. enda við umferðarmiðstöðina BSÍ þá ættu menn enn eftir að komast þaðan og á áfangastað. Nú hafa þær hugmyndir orðið ofan á að láta lestina keyra eins hratt og kostur er. Það þýðir að þá verður ekki hægt að taka upp farþega á leiðinni og lestin gagnast því eingöngu flugfarþegum til og frá Leifstöð. Aftur á móti, ef lestin á að gagnast fleirum og nema þá oftar staðar, því hægar fer hún og þá stenst hún síður samkeppnina við akandi umferð, því að hámarkshraði á fullbúinni Reykjanesbraut mætti vel hækka upp í 100 km/klst., án lagabreytingar.Falskar forsendurForsendur allra arðsemisútreikninga eru aðalatriði og þá er ekki gott að byggja á sandi. Ef forsendur eru rangar verður útkoman röng. Vafasamt er að gera ráð fyrir einhverri einni sviðsmynd framtíðar og vera óhóflega bjartsýnn á framgang hennar. Þá er enn ótalið það atriði, sem skiptir kannski mestu: lestin er algjör óþarfi! Þegar Reykjanesbraut verður tilbúin, sem fjögurra akreina stofnbraut með vegriðum og hraðamyndavélum, mun hún bera mun meiri umferð en fer um hana í dag. Þetta er ekki dýr framkvæmd og mannvirkið mun endast í fjöldamörg ár. Þó er mikilvægt að ljúka við báða enda hennar sem allra fyrst til þess að tryggja þar öryggi, áður en lengra er haldið. Ef rútum yrði fjölgað þannig að þær myndu keyra stöðugt eftir Reykjanesbraut, hálftómar að sjálfsögðu, og flytja farþega stöðugt milli staða, fengist mun ódýrari lausn en lestin. Hér er ekki verið að leggja slíkt til, enda líka óþarfi miðað við ávinning, en getur þó verið áhugaverð sýn til samanburðar. Þó er líklegt að slík samkeppni myndi reynast lestinni ofviða og reynt yrði að leggja flugrútuna niður.Í takt við tímannBílar eru að breytast og verða æ umhverfisvænni og minni. Þá er tæknin að aukast og munu bílar og fleiri farartæki verða rafknúin og sjálfkeyrandi í framtíðinni, a.m.k. að hluta á ákveðnum leiðum. Á Íslandi væri Reykjanesbrautin alveg tilvalinn vegarkafli til þess að byrja að nota sjálfkeyrandi bíla á. Fjölskyldur eða ferðahópar gætu leigt sjálfkeyrandi bíl til eða frá Keflavíkurflugvelli og komist leiðar sinnar í einum rykk. Þar með væri lest með dýrt fargjald, sem þyrfti að stoppa á leiðinni og færi ekki með þig upp að dyrum í einum rykk, frá upphafi í lakari samkeppnisstöðu.Vin eða hilling?Í fyrstu virðist hraðlest vera ágætis hugmynd, rétt eins og megrunarpillan. Erlendis er oft hægt að taka hraðlest frá flugvellinum að miðpunkti borgarinnar og ferðalagið er auðvelt. En þegar allar forsendur eru teknar með inn í reikninginn, svo sem stofnkostnaður, fjöldi farþega, fargjald, endapunktur lestarinnar, svo ekki sé minnst á viðhaldskostnað og framfarir í tækni, þá er víst að slík lest er óþarfa framkvæmd sem skattgreiðendur munu enda á að borga. Sama hvaða arðsemisútreikninga einkaaðilar bera fyrir sig mun lestin ekki skila hagnaði vegna þeirrar einföldu skýringar að forsendur útreikninganna eru rangar. Einkaaðilar myndu aldrei fara út í framkvæmdir sem ekki skiluðu hagnaði og ef vafi léki á slíku, eins og í þessu dæmi, myndu þeir krefjast ríkisábyrgðar. Af framansögðu er ljóst að lestarframkvæmd frá Leifstöð til Reykjavíkur er óhagkvæm framkvæmd sem mun gagnast fáum. Kostnaðurinn mun lenda á skattgreiðendum sem þýðir að minna verður til skiptanna fyrir önnur brýnni verkefni.Höfundar eru Haraldur Sigþórsson, umferðarverkfræðingur og Inga María Árnadóttir, pistlahöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar