Rannsaka dauða ungs blökkumanns skömmu eftir handtöku Kjartan Kjartansson skrifar 24. júlí 2017 10:48 Upptaka öryggismyndavélar sýnir Charles liggjandi á gólfi verslunar í glímu við lögreglumann. Skjáskot
Íbúar í Austur-London eru reiðir eftir að ungur maður lét lífið skömmu eftir að hann var eltur og handtekinn af lögreglumönnum á aðfaranótt sunnudags. Lögreglan segir að maðurinn hafi reynt að gleypa eitthvað og hafi í kjölfarið veikst. Lögreglumenn eltu Rashan Charles, tvítugan blökkumann, eftir að þeir höfðu reynt að stöðva bíl í Hackney-hverfinu skömmu fyrir klukkan tvö á aðfaranótt sunnudags. Á upptöku úr öryggismyndavél í sólahringsverslun sjást lögreglumennirnir handtaka Charles. Sést Charles meðal annars liggjandi á gólfinu með hendur bundnar fyrir aftan bak. Charles var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi skömmu síðar, að því er kemur fram í frétt The Guardian. Hann er sagður láta eftir sig barn.Reiðir og áhyggjufullir vegna dauða CharlesSjálfstæð eftirlitsnefnd með störfum lögreglunnar rannsakar nú dauða Charles. Talsmaður hennar segir að aðskotahlutur hafi verið fjarlægður úr koki hans á vettvangi. Á upptökunni virðist Charles stinga einhverju upp í sig. Scotland Yard segir að lögreglumennirnir hafi reynt að koma í veg fyrir að Charles skaðaði sjálfan sig. Honum hafi verið veitt fyrsta hjálp á staðnum. Baráttumenn gegn kynþáttahatri í Hackney hafa boðað vöku fyrir utan lögreglustöð í dag en þeir segjast hafa áhyggjur og séu reiðir vegna kringumstæðna dauða Charles. Þeir segja að dauði Charles sé aðeins enn eitt tilfellið þar sem ungir blökkumenn falli fyrir hendi lögreglumanna.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira