Lögreglan vill ná tali af þessum manni sem er á meðfylgjandi mynd vegna atviks sem átti sér stað fyrir utan skemmtistaðinn Austur í Austurstræti aðfaranótt 11. febrúar síðastliðinn.
Hann er vinsamlega beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið 0234@lrh.is eða einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.