Innlent

Tveimur mönnum bjargað af sökkvandi báti

Samúel Karl Ólason skrifar
Hjördís verður dregin til hafnar í Rifi.
Hjördís verður dregin til hafnar í Rifi. Vísir/Pjetur
Tveimur sjómönnum var bjargað úr sökkvandi báti norðvestur af Rifi seinni partinn í dag. Hjördís HU var komin mjög neðarlega í sjóinn og var byrjað að fljóta yfir hann þegar björgunarskipið Björg frá Rifi kom að honum. Landhelgisgæslan segir útlit fyrir að báturinn hafi verið ofhlaðinn.

„Hann var við það að fara niður báturinn þegar við komum að honum,“ segir Eggert Bjarnason, skipstjóri á Björgu, í samtali við Vísi.

„Við tókum mennina um borð og sendum menn frá okkur um borð í bátinn til að rétta hann af. Þeir losuðu veiðarfæri og afla og náðu stjórn á þessu.“

Björg er nú með bátinn í togi og á leið til hafnar í Rifi. Eggert segir að þegar þeir komu á vettvang hafi verið byrjað að flæða yfir Hjördísi. Það hafi reynst nauðsynlegt að henda afla og veiðarfærum í sjóinn til að lyfta honum upp.

Mennirnir um borð í Hjördísi báðu um aðstoð klukkan 16:38, samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni, en afþökkuðu hana svo. Áhöfn Bjargar ákvað þó að halda ferðinni áfram og Eggert segir að það hafi verið rétt ákvörðun.

„Það mátti ekki miklu muna þegar við náðum þeim um borð,“ segir Eggert.

Í tilkynningu Landhelgisgæslunnar segir að reynt hafi verið að kalla á nærliggjandi báta á rás 16, neyðarrás sjómanna, og hafi aðeins einn svarað.

„Þessi rás er eitt af mikilvægustu öryggistækjum sjófarenda en ef virk hlustun á hana er ekki fyrir hendi veitir hún falskt öryggi. Afleiðingarnar af því geta reynst mjög alvarlegar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×