Tveimur mönnum bjargað af sökkvandi báti Samúel Karl Ólason skrifar 15. febrúar 2017 18:54 Hjördís verður dregin til hafnar í Rifi. Vísir/Pjetur
Tveimur sjómönnum var bjargað úr sökkvandi báti norðvestur af Rifi seinni partinn í dag. Hjördís HU var komin mjög neðarlega í sjóinn og var byrjað að fljóta yfir hann þegar björgunarskipið Björg frá Rifi kom að honum. Landhelgisgæslan segir útlit fyrir að báturinn hafi verið ofhlaðinn. „Hann var við það að fara niður báturinn þegar við komum að honum,“ segir Eggert Bjarnason, skipstjóri á Björgu, í samtali við Vísi. „Við tókum mennina um borð og sendum menn frá okkur um borð í bátinn til að rétta hann af. Þeir losuðu veiðarfæri og afla og náðu stjórn á þessu.“ Björg er nú með bátinn í togi og á leið til hafnar í Rifi. Eggert segir að þegar þeir komu á vettvang hafi verið byrjað að flæða yfir Hjördísi. Það hafi reynst nauðsynlegt að henda afla og veiðarfærum í sjóinn til að lyfta honum upp. Mennirnir um borð í Hjördísi báðu um aðstoð klukkan 16:38, samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni, en afþökkuðu hana svo. Áhöfn Bjargar ákvað þó að halda ferðinni áfram og Eggert segir að það hafi verið rétt ákvörðun. „Það mátti ekki miklu muna þegar við náðum þeim um borð,“ segir Eggert. Í tilkynningu Landhelgisgæslunnar segir að reynt hafi verið að kalla á nærliggjandi báta á rás 16, neyðarrás sjómanna, og hafi aðeins einn svarað. „Þessi rás er eitt af mikilvægustu öryggistækjum sjófarenda en ef virk hlustun á hana er ekki fyrir hendi veitir hún falskt öryggi. Afleiðingarnar af því geta reynst mjög alvarlegar.“
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira