Veðurspár gera ráð fyrir að allt þrjátíu sentímetra úrkoma geti fallið í Houston í Bandaríkjunum í dag. Borgin er þegar á kafi eftir fordæmalausar rigningar síðustu daga. Heildarúrkoman gæti þá nálgast 130 sentímetra á örfáum dögum.
Gangi spárnar eftir mun vatnselgurinn í þessari fjórðu fjölmennustu borg Bandaríkjanna enn aukast. Yfir þrjátíu þúsund manns hafa þegar þurft að flýja heimili sín vegna hitabeltisstormsins Harvey sem var öflugur fellibylur þegar hann gekk á land í Texas á föstudagskvöld.
Að minnsta kosti níu manns eru látnir á Houston-svæðinu, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Sex meðlimir sömu fjölskyldu fórust meðal annars í bíl á flótta undan flóðunum. Lögreglustjórinn í Houston óttast að þegar flóðin sjatni muni fjöldi líka finnast.
Harvey er nú byrjaður að teygja anga sína yfir nágrannaríkið Lúisíana og búa borgarbúar í New Orleans sig undir flóð, minnugir hörmunganna sem fellibylurinn Katrina leiddi yfir þá árið 2005.
Til stendur að Donald Trump Bandaríkjaforseti heimsæki Texas og mögulega Lúisíana í dag, þó ekki Houston. Hann hefur heitið því að senda neyðaraðstoð til ríkjanna sem verða fyrir Harvey í snatri.
Harvey ber áfram í bakkafullan lækinn í Houston

Tengdar fréttir

Óttast að þeir muni finna fjölda líka í Houston
Talið er að sex meðlimir einnar fjölskyldu, þar af fjögur börn, hafi dáið þegar bíll þeirra varð fyrir flóðbylgju.

Trump heldur til Texas á þriðjudag
Yfir tvö þúsund hefur verið bjargað frá hamfaraflóðunum í Texas. Búið er að staðfesta þrjú dauðsföll af völdum fellibylsins en talið er að þau séu mun fleiri.

Viðbragðsaðilar að drukkna í hjálparbeiðnum
Þúsundum símtala rignir yfir lögreguna, slökkviliðið og strandgæsluna í Texas.