Endurupptökubeiðni dæmds barnaníðings hafnað Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 11. janúar 2017 13:05 Maðurinn var árið 2008 dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir brot gegn sex ungum stúlkum. vísir/GVA
Endurupptökunefnd hefur hafnað beiðni manns um endurupptöku máls síns en maðurinn var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sex ungum stúlkum árið 2008, en þrjár þeirra voru frænkur hans. Maðurinn var dæmdur til að greiða stúlkunum bætur, frá 300 þúsund til einnar milljónar króna. Héraðsdómur Reykjavík¬ur hafði áður dæmt manninn í tveggja og hálfs árs langt fangelsi. Maðurinn óskaði eftir endurupptöku málsins á grundvelli þess að ný gögn hafi komið fram í málinu sem sýni fram á að hann hafi verið ranglega sakfelldur eða sakfelldur fyrir mun meira brot en það sem hann hafi framið.Alvarleg brot gegn börnumÍ dómi hæstaréttar frá árinu 2008 segir að maðurinn hafi gerst sekur um mörg brot, einkum kynferðisbrot gegn börnum og unglingum og að sum þeirra séu mjög alvarleg. Var hann ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum ungum stúlkum á árunum 2204 og 2005, kynferðisbrot gegn ungu barni á árunum 1988-1994 og gegn öðru ungu barni á árinu 1993 eða 1994. Þá var hann einnig ákærður fyrir áfengislagabrot árið 2006. Maðurinn var sakfelldur fyrir verulegan hluta þeirrar háttsemi sem honum var gefin að sök. Sem ný gögn lagði maðurinn fram yfirlýsingu tveggja ættingja varðandi tiltekinn vitnisburð í málinu, vottorð landspítala um sjúkrahúslegu hans í ágúst 1993, vottorð læknis, samantekt um villur í héraðsdómi, samantekt um vinnuaðferðir rannsóknaraðila, samantekt um ósamræmi í vitnisburði allra vitna í málinu, vinnuskýrslur og fleira frá júlí og ágúst 1993. Með endurupptökubeiðninni fylgdi einnig málflutningsræða verjenda. Í niðurstöðu endurupptökunefndar segir að meðal þeirra gagna sem voru lögð fyrir nefndina hafi verið gögn og upplýsingar sem lágu fyrir við meðferð málsins fyrir héraði og Hæstarétti. „Slík gögn geta ekki talist ný gögn í skilningi a-liðar 211. gr. laga um meðferð sakamála. Önnur gögn sem endurupptökubeiðandi byggir á eru ekki þannig að þau geti talist ný gögn sem ætla má að hefðu verulega miklu skipt fyrir niðurstöðu málsins ef þau hefðu komið fram áður en dómur gekk,” segir í úrskurðinum. Þá telur endurupptökunefnd að ekkert hafi komið fram sem sýni að ætla megi að ákærandi eða dómari hafi haft í frammi refsiverða háttsemi í því skyni að fram þau málalok sem orðin eru. Einn telur hún að ekki verði talið að vitni eða aðrir hafi vísvitandi borið ranglega fyrir dómi og að það hafi valdið rangri niðurstöðu dómsins. "Rökstuðningur endurupptökubeiðanda hvað varðar framburð stúlknanna og vitnanna er reistur á sömu sjónarmiðum og haldið var fram af hans hálfu við meðferð málsins fyrir dómstólum og var tekinn afstaða til hans þar. Yfirlýsing tveggja ættingja endurupptökubeiðanda um meintar lygar einnar stúlkunnar gefa ekki tilefni til annarrar niðurstöðu. Að lokum er ekki hægt að fallast á þann rökstuðning endurupptökubeiðanda að verulegir gallar hafi verið á meðferð málsins þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess”
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Fleiri fréttir Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Sjá meira