Móðir fórnarlambs skotárásarmannsins Dylans Roofs segist fyrirgefa honum Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 11. janúar 2017 22:19 Felicia Sanders, móðir Tywanza Sanders, eins fórnarlamba Roofs, tók til máls við uppkvaðningu dómsins og sagðist fyrirgefa Roof fyrir glæp sinn. Vísir/Epa
Felicia Sanders, móðir Tywanza Sanders, eins fórnarlamba Dylans Roofs sem skaut níu manns til bana 17. júní 2015, tók til máls við uppkvaðningu dóms í málinu og sagðist fyrirgefa Roof fyrir glæp sinn. ABC greinir frá.„Þú tókst frá mér ástina mína og síðan 17. Júní hef ég þekkt þig og kynnst þér. Ég þekki þig vegna þess að þú hefur verið í huga mér alla daga síðan. Ég get ekki heyrt í blöðru springa, ég get ekki horft á flugelda,“ segir Sanders og bætir við að hún geti ekki lokað augunum þegar hún biður til Guðs þar sem hún verði að hafa þau opin til þess að hún geti haft augun á fólkinu í kringum sig. Fleiri aðstandendur tóku einnig til máls en Roof lét sem ekkert væri og horfði ekki á þau og neitaði hann að tjá sig. Fjölskylda Roof sagðist aldrei munu skilja hvers vegna hann framdi þennan hatursglæp en sögðu jafnframt að þau elskuðu hann. Það tók aðeins þrjá klukkutíma fyrir kviðdóminn að dæma Dylan Roof til dauða fyrir hrottaleg morð og hatursglæpi en Roof skaut níu svarta Bandaríkjamenn til bana í kirkju í Charleston í Suður-Karólínu fylki 17. Júní 2015. Roof myrti fólkið, sem var samankomið til að lesa úr Biblíunni, í nafni hvítrar þjóðernishyggju. Dómurinn var uppkveðinn síðdegis í gær og var hann formlega kynntur í dag.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira