Myrti konu sína og faldi lík hennar Samúel Karl Ólason skrifar 15. nóvember 2017 21:15 Tíu eru særðir eftir árásina og þar á meðal nokkur börn. Vísir/AFP
Tala látinna í Kaliforníu er nú komin í fimm eftir skotárás í bænum Rancho Tehama í gær. Svo virðist sem að árásarmaðurinn, Kevin Neal, hafi fyrst myrt eiginkonu sína og falið lík hennar undir gólfinu í húsi þeirra. Lögreglan segir að hún hafi verið skotin margsinnis og æði Neal hafi byrjað á morði hennar. Neal gekk laus gegn tryggingu eftir að hann var handtekinn fyrir að stinga nágranna sinn í janúar. Samkvæmt dómsskjölum átti hann ekki að mega eiga skotvopn. Þegar hann var skotinn til bana af lögregluþjónum í gær var hann þó með tvær skammbyssur og einn hálfsjálfvirkan riffil í fórum sínum. Hann skilaði vopnum sínum sem hann átti til yfirvalda í febrúar en lögreglan segir að hann hafi komist yfir byssurnar sem fundust á honum með ólöglegum hætti og þær hefðu verið skráðar á aðra. Tíu eru særðir eftir árásina og þar á meðal nokkur börn.Sjá einnig: Segja kennara hafa bjargað lífum nemendaSamkvæmt frétt AP fréttaveitunnar telur lögreglan að Neal hafi myrt konu sína og hann hafi gert það á mánudaginn. Þá hefur lögreglan breytt yfirlýsingu sinni frá því í dag um að árásin hafi staðið yfir í um 45 mínútur eftir að Neal myrti tvo nágranna sína sem hann hafði lengi deilt við og stal bíl af öðrum. Nú telur lögreglan að árásin hafi staðið yfir í um 25 mínútur.Tilefni æðis Neal liggur þó enn ekki fyrir. „Ég held að hann hafi viljað myrða eins marga og hann gat,“ sagði Phil Johnston, aðstoðarfógeti Tahomasýslu við blaðamenn í dag.
Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira