Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti erlendan göngumann í sjálfheldu Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 31. júlí 2017 21:56 TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar sinnti fjölbreyttum útköllum í dag. Myndin er úr safni.
Um kvöldmatarleytið í kvöld óskaði lögreglan á Suðurlandi eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar til að grennslast fyrir um erlendan göngumann sem ætlaði að ganga yfir Fimmvörðuháls, en hefur ekki skilað sér á áfangastað samkvæmt ferðaáætlun. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, var send á svæðið og mun hún reyna að miða út GSM síma mannsins með sérstökum miðunarbúnaði. Um var að ræða þriðja útkallið sem TF-LÍF sinnir í dag. Um klukkan fjögur, þegar þyrlan var að ljúka verkefni á Vestfjörðum, var óskað eftir aðstoð hennar vegna erlends göngumanns sem var í sjálfheldu á gönguleiðinni milli Keflavíkur og Rauðasands, austan Látrabjargs. Þyrlan hélt þegar á vettvang, auk lögreglu og björgunarsveita. Fann þyrlan manninn þar sem hann var í miklum bratta og komst hvergi. Var maðurinn hífður upp í þyrluna sem flutti hann til lögreglu og björgunarsveita. Var hann ómeiddur. Meðan þyrlan sinnti björgun göngumannsins barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um sjúkraflug á Drangsnes og hélt þyrlan þegar þangað að björgun lokinni. Um klukkan 18:30 lenti þyrlan á Drangsnesi þar sem sjúklingur var tekinn um borð. Laust eftir klukkan 19 lenti þyrlan svo með sjúklinginn á Reykjavíkurflugvelli, þaðan sem hann var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann. Þá hefur þyrlan sinnt öðrum verkefnum í dag.. Fyrir hádegi var flogið með björgunarsveitarmenn frá Akranesi upp á Skarðsheiði til að sinna viðhaldi á fjarskiptaendurvarpa björgunarsveitanna, en endurvarpinn er mikilvægur til að tryggja samskipti björgunaraðila við leit og björgun á Vesturlandi. Í framhaldi af því var svo flogið með tæknimenn Neyðarlínunnar vestur á Straumnesfjall til viðgerða á tæknibúnaði fyrir AIS ferilvöktunarkerfi skipa, en AIS kerfið er mikilvægur hlekkur í öryggismálum sjófarenda.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira