Lífið

Fegurðardrottningar fortíðarinnar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ýmsar þekktar konur hafa keppt í fegurð.
Ýmsar þekktar konur hafa keppt í fegurð. Vísir / Skjáskot af timarit.is

Arna Ýr Jónsdóttir keppti nýverið í alþjóðlegu fegurðarsamkeppninni Miss Universe. Vísir ákvað því að kíkja aðeins í kistu minninganna og rifja upp nokkrar fegurðardrottningar, sem sumir eru kannski búnir að gleyma.

Berglind, Bryndís, Hrafnhildur og Alexía kepptu allar árið 1995.Vísir / Skjáskot af timarit.is

Stjörnukeppendur 1995

Það var mikið um dýrðir í Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur árið 1995. Meðal keppenda voru Berglind Icey Ólafsdóttir, sem hefur síðan haslað sér völl vestan hafs, Alexía Björg Jóhannesdóttir, leikkona, Bryndís Ásmundsdóttir leik- og söngkona og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnurekstri.

Það var Berglind sem var krýnd Ungfrú Reykjavík, Bryndís var vinsælasta stúlkan og Hrafnhildur var kosin besta ljósmyndafyrirsætan. Þegar kom að Fegurðarsamkeppni Íslands þetta árið var það Hrafnhildur sem bar sigur úr býtum.

Brynja og Andrea í glæsilegum kjólum.Vísir / Skjáskot af timarit.is

Fallegustu leggirnir

Það var hart barist í Fegurðarsamkeppni Íslands árið 1993 þar sem átján stúlkur kepptumst um kórónuna. 

Meðal keppenda voru Andrea Róbertsdóttir, fjölmiðlakona með meiru, og Brynja X Vífilsdóttir, sem hefur meðal annars fengist við verslunarrekstur á Spáni eftir að hún sagði skilið við fyrirsætubransann. Andrea hlaut tvenn verðlaun í keppninni, fyrir fallegustu leggina og var vinsælasta stúlkan, en Brynja endaði í þriðja sæti.

Ragnhildur Steinunn heillaði dómara upp úr skónum.Vísir / Skjáskot af timarit.is

Engin fegurri

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir kom, sá og sigraði árið 2003 þegar hún hlaut bæði titilinn Fegurðardrottning Suðurnesja og Fegurðardrottning Íslands.

Það þekkja eflaust flestir Ragnhildi, en hún hefur unnið í sjónvarpi síðan stuttu eftir krýninguna og gert þar gott mót.

Tinna Alavis var vinsæl fyrirsæta á árum áður.Vísir / Skjáskot af timarit.is

Annað þekkt andlit sem keppti í Ungfrú Ísland árið 2003 er Tinna nokkur Alavis, sem í dag gerir garðinn frægan sem svokallaður lífsstílsbloggari.

Það var mikið um dýrðir við krýninguna.Vísir / Skjáskot af timarit.is

Flugmaðurinn og leikkonan

Þegar kom að því að krýna arftaka sinn, átti Ragnhildur ekki í neinum vandræðum með það þegar Selfyssingurinn Hugrún Harðardóttir var kosin Ungfrú Ísland árið 2004.

Í öðru sæti á eftir Hugrúnu var Sigrún Bender, flugmaður og þriðja sætið vermdi leikkonan Halldóra Rut Bjarnadóttir.

Skelegg fjölmiðlakona hér á ferð.Vísir / Skjáskot af timarit.is

Úr fegurðarsamkeppni í fjölmiðla

Fjölmiðlakonan Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir hefur vakið mikla athygli fyrir störf sín á fjölmiðlum, en hún starfar nú sem ritstjóri Stundarinnar, miðils sem hún tók þátt í að stofna.

Færri vita kannski að Ingibjörg tók þátt í Fegurðarsamkeppni Austurlands árið 1997. Hún náði þó ekki að hreppa hnossið.

Manuela geislar.Vísir / Skjáskot af timarit.is

Rauði kjóllinn

Það er varla hægt að rifja upp fegurðardrottningar fortíðarinnar án þess að minnast á Manuelu Ósk Harðardóttur, sem starfar í dag sem áhrifavaldur og samfélagsmiðlastjarna að mestu leyti.

Manuela var krýnd Ungfrú Ísland árið 2002 í frægum, rauðum kjól sem hnefaleikakappinn Mike Tyson keypti handa henni. 

Arna, Birna, Eygló og Kolbrún.Vísir / Skjáskot af timarit.is

Meðal annarra kvenna sem hafa stigið sín fyrstu skref í fegurðarsamkeppnum í gegnum tíðina eru Eygló Ólöf Birgisdóttir, förðunarfræðingur, Birna Bragadóttir, athafnakona, Arna Pétursdóttir, verslunareigandi og Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, hönnuður.

 




Tengdar fréttir

Sjáðu Örnu Ýr sýna „þjóðbúninginn“ í Miss Universe

Fegurðardrottningin Arna Ýr Jónsdóttir er nú á fullu að undirbúa sig undir Miss Universe keppnina sem fram fer um næstu helgi. Í gær sýndi hún "þjóðbúning“ Íslands á sérstökum viðburði í Las Vegas í Bandaríkjunum þar sem keppnin fer fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×