Jólaspá Siggu Kling – Hrúturinn: Réttlætið skiptir þig öllu máli 1. desember 2017 09:00
Elsku Hrúturinn minn, þetta hefur verið mjög litríkt ár með miklu fleiri góðum en slæmum punktum en það er í eðli hugans að draga frekar að sér erfiðleikana sem hindra mann heldur en það dásamlega sem hefur gerst í kringum þig. Þú býrð yfir brennandi þrá til að gera hlutina sérstaka og þar af leiðandi finnst þér þú tapa ef það gengur ekki alveg 100%. Þú ert svo stoltur og vilt ekki að aðrir viti þegar illa gengur, ég las einhvers staðar að 90% af fólki er alveg skítsama hvernig gengur hjá þér, og hin 10% eru bara svolítið ánægð með að þér gangi ekki vel. Svo haltu bara því fyrir þig sem þú vilt ekki að allir séu að tala um, en treystu þínum innsta hring, þess vegna heitir hann innsti hringur. Það er að koma dásamlegur tími í desember, sérstaklega þegar tunglið er fullt því það er fullt tungl í nautsmerkinu sem gefur ástarplánetuna Venus, svo góð ást verður betri, en vond ást getur sprungið. Og það er jákvætt því það er tilgangur ástarinnar að leiðrétta og láta mann finna hina einu sönnu hamingju. Þótt þú búir yfir því að vera svona sterk manneskja þá er alltaf hollt að geta grátið stundum og eins og vinkona mín sagði; ef maður grætur, Sigga mín, þá fær maður ekki krabbamein. Þetta er alls ekki vísindalega sannað en ég trúi því samt, svo leyfðu þér bara að gráta, en bara stutta stund til að losa um spennu því að þessi vetur er þinn tími og þú stendur hvort sem er uppi sem stoltur sigurvegari. Það sem getur orðið einkennandi fyrir þig á næstu mánuðum er að þú ert mjög skapmikill og réttlætið skiptir þig öllu máli, en láttu þér verða það að lexíu að telja upp að tíu áður en þú segir eitthvað sem verður ekki aftur tekið, því ef þú sendir reiðina út þá færðu hreina reiði til baka. Notaðu þessa orku í að finna betri leið til að sigra það sem hrjáir þig og þú þarft að vera svolítið sniðugur og fá fólk á þitt band og sérstaklega fáðu það fólk sem fer í taugarnar á þér með þér í lið.Frægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla, Alda í Handy pandy, naglalistakona, Vala Grand, Hjálmar Forni listamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson, Elín Björnsdóttir, fyrirlesari og kraftaverkakona. Skilaboðin til þín eru frá okkar flotta Hrúti, henni Sölku Sól: Taktu lífið ekki of alvarlega, bara – Hossa Hossa(Amabadama)
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Anthony Head er látinn Lífið James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Lífið samstarf Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Fleiri fréttir Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Sjá meira