Erlent

Kelley strauk af geðdeild árið 2012

Atli Ísleifsson skrifar
Devin Patrick Kelley banaði 26 manns og særði um tuttugu í árás í kirkju í Sutherland Springs í Texas á sunnudag.
Devin Patrick Kelley banaði 26 manns og særði um tuttugu í árás í kirkju í Sutherland Springs í Texas á sunnudag. Vísir/AFP
Devin Patrick Kelley, sem banaði 26 manns og særði um tuttugu í árás í kirkju í Sutherland Springs í Texas á sunnudag, strauk af geðdeild árið 2012.

Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að hann hafi verið sendur á geðdeild af hernum eftir að hann hafði verið gripinn við að reyna að smygla vopnum inn á herstöð sína í Nýju Mexíkó.

Var hann grunaður um að vera að leggja á ráðin um árás gegn yfirmönnum sínum sem hann hafði hótað líkamsmeiðingum og dauða.

Áður hafði komið í ljós að Kelley hafi farið fyrir herrétt og verið dæmdur í árs fangelsi fyrir að beita eiginkonu sína og stjúpsyni ofbeldi.

Með dóminn á bakinu hefði hann í raun ekki átt að getað keypt skotvopn, en fyrir mistök gleymdu starfsmenn bandaríska flughersins að tilkynna málið til bandarísku alríkislögreglunnar.

Um það bil helmingur fórnarlamba árásarinnar á sunnudag var á barnsaldri. Þá var barnshafandi kona einnig á meðal hinna látnu.


Tengdar fréttir

Kelley drap ömmu eiginkonu sinnar í kirkjunni

Lögregla staðfesti í gær að Kelley hafi sent tengdamóður sinni hótanir í textaskilaboðum, en hún var tíður gestur í kirkjunni þar sem ódæðið var framið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×