Glitnir fær hlutdeild í hagnaði íslenskra fjárfesta af sölu Refresco Kristinn Ingi Jónsson skrifar 26. október 2017 08:57 Refresco Group er eitt stærsta átöppunarfyrirtæki safa og gosdrykkja í Evrópu
Eignarhaldsfélagið Glitnir HoldCo fær hlutdeild í hagnaði íslenskra fjárfesta af sölu evrópska drykkjaframleiðandans Refresco Group samkvæmt afkomuskiptasamningi sem gerður var við félagið í vor. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins. Samningurinn var gerður gagngert vegna væntinga um að drykkjaframleiðandinn yrði seldur í einu lagi. Íslenskir hluthafar í Refresco Group fá á þriðja tug milljarða króna í sinn hlut við yfirtöku fjárfestingarsjóðanna PAI Partners og British Columbia Investment Managament Corporation á drykkjaframleiðandanum. Þeir hafa hagnast ríkulega á fjárfestingu sinni í Refresco. Tilkynnt var um yfirtökuna í gærmorgun. Fjárfestingarsjóðirnir hyggjast kaupa allt hlutafé í drykkjaframleiðandanum fyrir um 20 evrur á hlut. Gert er ráð fyrir að kaupin gangi í gegn á fyrsta fjórðungi næsta árs. Ef tekið er mið af heildarkaupverði fjárfestingarsjóðanna á Refresco, sem nemur um 1,62 milljörðum evra, þá fær eignarhaldsfélagið Ferskur Holding, sem er stærsti einstaki hluthafi Refresco með 14,53 prósenta eignarhlut, 235 milljónir evra, eða sem nemur 29,2 milljörðum króna, í sinn hlut. Ferskur Holding er meðal annars í eigu eignarhaldsfélagsins Stoða, áður FL Group, Kaupþings og dótturfélags Arion banka. Virði 8,9 prósenta eignarhlutar Stoða í Refresco – sem er í gegnum áðurnefnt félag, Ferskur Holding – var 12,7 milljarðar í lok síðasta árs, 15,8 milljarðar í lok júní- mánaðar en er 17,9 milljarðar miðað við samþykkt yfirtökugengi. Hefur hluturinn þannig hækkað um 41 prósent í virði frá áramótum. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá eignuðust einkahlutafélögin S121 og S122, sem eru í eigu tryggingafélagsins TM og hóps íslenskra fjárfesta, 50,2 prósenta hlut í Stoðum í apríl síðastliðnum. Keyptu þeir hlutinn af Glitni, sem var fyrir viðskiptin stærsti hluthafi Stoða, og nokkrum erlendum fjármálastofnunum. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvað var greitt fyrir hlutinn, en miðað við gengi bréfa Refresco á hlutabréfamarkaðinum í Amsterdam á þeim tíma þegar kaupin gengu í gegn er líklegt kaupverð um sjö til átta milljarðar króna. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gerði fjárfestahópurinn sérstakan afkomuskiptasamning við Glitni HoldCo sem tryggði félaginu hlutdeild í framtíðarhagnaði af sölu Refresco. Var samningurinn gerður gagngert vegna væntinga um að drykkjaframleiðandinn yrði yfirtekinn. Umsvifamiklir fjárfestingarsjóðir hafa sýnt Refresco mikinn áhuga um nokkurt skeið. Eignarhlutur TM í Stoðum, sem metinn var á tæpa 1,8 milljarða króna í lok júnímánaðar, er langsamlega stærsta fjárfestingareign tryggingafélagsins. Miðað við yfirtökugengi Refresco er virði hlutarins nú um 2,2 milljarðar króna og má því ætla að gengishagnaður félagsins sé yfir 20 prósent á aðeins fáeinum mánuðum. Jón Sigurðsson hefur setið í stjórn Refresco Group frá árinu 2009.Auk TM samanstendur fjárfestahópurinn af félögunum Helgafelli, Eini, Esjuborg og GGH. Helgafell er í jafnri eigu Bjargar Fenger, Ara Fenger og Kristínar Vermundsdóttur, en Jón Sigurðsson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri FL Group, sem setið hefur í stjórn Refresco frá árinu 2009, stýrir fjárfestingum félagsins. Einir er fjárfestingarfélag Einars Arnar Ólafssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, og þá er Esjuborg í jafnri eigu félaga Jóhanns Arnars Þórarinssonar, stærsta eiganda veitingarisans FoodCo, og Örvars Kjærnested, fjárfestis og stjórnarmanns í TM. Einkahlutafélagið GGH er í eigu félaga sem tengjast Magnúsi Ármann, fjárfesti og fyrrverandi stjórnarmanni í FL Group, og föður hans, Ágústi Má Ármann. Fyrir utan félögin S121 og S122 eru Arion banki og Landsbankinn stærstu hluthafar Stoða. Arion banki á 16,4 prósenta hlut og Landsbankinn 13,4 prósent, að því er fram kemur í árshlutareikningi Stoða. Þá á Íslandsbanki 1,7 prósent. Arion banki heldur enn fremur á 10,5 prósenta hlut í Fersk Holding í gegnum dótturfélag sitt EAB 1. Sá hlutur var metinn á 16,1 milljón evra, sem jafngildir tæpum tveimur milljörðum króna, í lok síðasta árs og er matið byggt á framlegð og EBITDA-margföldurum Refresco, að því er fram kemur í ársreikningi. Sé miðað við kaupverð sjóðanna á Refresco er virði eignarhlutar Arion banka í gegnum Ferskur Holding komið upp í 24,7 milljónir evra. Stoðir áttu lengi vel um 40 pró- senta hlut í Refresco, en eftir að fyrirtækið sameinaðist Gerber Emig í nóvember 2013 eignuðust Stoðir um þriðjungshlut í sameinuðu félagi. Félagið var skráð á hlutabréfamarkað í Amsterdam í mars 2015 og fór þá hlutur félagsins niður í um 16 prósent. Er hann nú um 8,9 prósent. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira