Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Birgir Olgeirsson skrifar 4. júní 2026 16:35 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðlfokksins ræddu málefni Icelandair á Alþingi í dag. Sigmundur kallaði eftir því að Íslendingar segðu sig frá ETS-kerfi Evrópusambandsins. Kristrún sagði virka hagsmunagæslu í gangi gagnvart því kerfi. Vísir/Vilhelm Icelandair hefur bókfært 110,2 milljónir dala, eða um 13,6 milljarða króna, í losunar- og kolefniskostnað frá ársbyrjun 2022 til loka mars á þessu ári.
Kostnaðurinn hefur vaxið hratt á sama tíma og rekstur Icelandair hefur verið þungur. Á árunum 2022 til 2025 bókfærði félagið 102,8 milljónir dala, eða um 12,7 milljarða króna, í losunar- og kolefniskostnað. Á sama tímabili tapaði Icelandair Group samtals 24,3 milljónum dala, eða um þremur milljörðum króna, eftir skatta. Loftslagsgjöldin voru því rúmlega fjórfalt hærri en samanlagt tap félagsins á þessum fjórum árum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kallaði ETS-kerfi Evrópusambandsins „dellu" á Alþingi í dag. Vísir Icelandair og svokölluð ETS-gjöld komu til umræðu í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, spurði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra hvers vegna ríkisstjórnin grípi ekki til aðgerða vegna versnandi stöðu í íslensku efnahagslífi. Ísland gæti ekki innleitt kerfið með óbreyttum hætti Sigmundur nefndi sérstaklega stöðu Icelandair og vísaði til ETS-kerfisins, viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir, sem Ísland tekur þátt í í gegnum EES-samninginn. „Ein leiðin til að bregðast við með afgerandi hætti væri að bregðast við þeirri stöðu sem Icelandair er statt í núna,“ sagði Sigmundur. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir loftslagsgjöldin vera þungar byrðar á rekstri Icelandair. Hann hefur kallað eftir því að stjórnvöld beiti sér í málinu. Sérlausn sem Ísland hefur varðandi ETS-gjöldin rennur út um áramótin. Bogi hefur sagt að gjöldin muni því þrefaldast að óbreyttu. Hann hefur bent á að flugsamgöngur séu um þrjú prósent af allri losun á heimsvísu. Vísir/Einar Hann spurði hvort ekki væri tímabært að forsætisráðherra, eða eftir atvikum utanríkisráðherra, hefði samband við Evrópusambandið og útskýrði að Ísland gæti ekki tekið þátt í innleiðingu kerfisins með óbreyttum hætti. Sigmundur sagði að aðstæður leyfðu það ekki og vísaði til þess að Ísland væri eyland sem reiddi sig alfarið á flugsamgöngur til að tryggja tengingar við umheiminn. Ísland haldi sinni sérstöðu á lofti Kristrún sagði ríkisstjórnina hafa náð árangri undanfarið og að aðgerðum hennar væri ekki lokið. Hlutirnir væru á leið í rétta átt. Um stöðu Icelandair og ETS-kerfið sagði forsætisráðherra að ríkisstjórnin ynni stöðugt að því að halda sérstöðu Íslands á lofti gagnvart Evrópusambandinu. Kristrún sagði stjórnvöld eiga í virku samtali við Evrópusambandið um sérstöðu Íslands varðandi flugsamgöngur. Vísir/Vilhelm „Hvað varðar stöðu Icelandair sérstaklega, eða umræðuna um hið svokallaða ETS-kerfi, þá höfum við hingað til fengið undanþágu frá því. Það er unnið að því alla daga að halda því til haga hver sérstaða Íslands er og sú barátta er enn í gangi,“ sagði Kristrún. Sérlausn Íslands vegna ETS-kerfisins rennur að óbreyttu út um áramótin en forstjóri Icelandair hefur sagt að þessi gjöld muni hækka umtalsvert ef það verður raunin, eða allt að þrefalt. Hún sagði að íslensk stjórnvöld hefðu fengið ágætis hljómgrunn fyrir þessum sjónarmiðum gagnvart Evrópusambandinu. „Það eru allir meðvitaðir um að það þarf að halda sérstöðu Íslands á lofti hvað það varðar og það gerum við daglega gagnvart Evrópusambandinu,“ sagði forsætisráðherra. Talsverður kostnaður Losunar- og kolefniskostnaður Icelandair nam 15,1 milljón dala árið 2022, eða um 1,9 milljörðum króna. Það ár tapaði félagið 5,8 milljónum dala, eða um 716 milljónum króna. Árið 2023 nam kostnaðurinn 23,3 milljónum dala, eða um 2,9 milljörðum króna. Icelandair hagnaðist það ár um 11,2 milljónir dala, eða um 1,4 milljarða króna. Árið 2024 nam kostnaðurinn 21,3 milljónum dala, eða um 2,6 milljörðum króna. Tapið það ár nam 20,2 milljónum dala, eða um 2,5 milljörðum króna. Rekstur Icelandair hefur verið þungur undanfarin ár, á sama tíma og loftslagsgjöld hafa aukist til muna. Vísir/Vilhelm Árið 2025 nam losunar- og kolefniskostnaðurinn 43,1 milljón dala, eða um 5,3 milljörðum króna. Tapið það ár nam 9,5 milljónum dala, eða um 1,2 milljörðum króna. Í eldri uppgjörum Icelandair er kostnaðurinn birtur sem „emission charges“, eða losunargjöld. Í uppgjöri ársins 2025 er hann sundurliðaður nánar. Þar námu ETS-gjöld 35,1 milljón dala, eða um 4,3 milljörðum króna. CORSIA-kolefniseiningar námu 3,6 milljónum dala, eða um 444 milljónum króna, og gjöld vegna sjálfbærs flugeldsneytis námu 4,4 milljónum dala, eða um 543 milljónum króna. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs nam losunarkostnaður Icelandair 7,4 milljónum dala, eða um 914 milljónum króna. Á sama tíma tapaði félagið 45,3 milljónum dala, eða um 5,6 milljörðum króna. Frá ársbyrjun 2022 til loka mars á þessu ári hefur Icelandair því bókfært 110,2 milljónir dala, eða um 13,6 milljarða króna, í losunar- og kolefniskostnað. Á sama tímabili nemur samanlagt tap félagsins um 69,6 milljónum dala, eða um 8,6 milljörðum króna. Hefur áhrif á samkeppnisstöðu ETS-kerfið getur haft áhrif á samkeppnisstöðu Icelandair á Atlantshafsmarkaði, því félagið ber ETS-kostnað á Evrópulegg tengiflugs um Keflavík sem beinir keppinautar á leiðum milli Evrópu og Bandaríkjanna bera almennt ekki með sama hætti. ETS-kerfið getur einnig haft áhrif á samkeppnisstöðu Icelandair varðandi flug yfir Atlantshafið. Vísir/Vilhelm ETS leggst á flugleiðir en ekki þjóðerni flugfélaga, en þar sem kerfið gildir nú fyrst og fremst um flug innan Evrópu/EES fellur til dæmis leggurinn París–Keflavík undir ETS þegar farþegi flýgur með Icelandair frá París til New York með viðkomu á Íslandi. Sá hluti ferðarinnar ber því ETS-kostnað, þótt áframhaldandi flug frá Keflavík til New York falli ekki undir kerfið með sama hætti, á meðan beint flug París–New York með bandarísku flugfélagi fellur almennt undir CORSIA, sem er vægara alþjóðlegt kerfi. Munurinn bætist ofan á annan kostnað í rekstri þar sem framlegð er lítil, verðsamkeppni hörð og farþeginn ber saman tengiflug um Keflavík við hraðara beint flug yfir Atlantshafið.
Icelandair Loftslagsmál Flug Tengdar fréttir Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, segir engan fjárfesti eða hluthafa leggja meira fé til Icelandair fyrr en búið sé að skapa samkeppnishæft módel um rekstur félagsins. Hann segir stöðu félagsins tvísýna og erfiða. 3. júní 2026 21:47 Mest lesið Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Neytendur Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Viðskipti innlent Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Viðskipti erlent Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Viðskipti innlent Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Samstarf Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Viðskipti innlent Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Viðskipti innlent Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Sjá meira
Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, segir engan fjárfesti eða hluthafa leggja meira fé til Icelandair fyrr en búið sé að skapa samkeppnishæft módel um rekstur félagsins. Hann segir stöðu félagsins tvísýna og erfiða. 3. júní 2026 21:47