Óheilbrigt vinnuumhverfi er ógn við geðheilsu Erna Guðmundsdóttir skrifar 10. október 2017 07:00 Árlega efna félagasamtök og stofnanir sem starfa að geðheilbrigðismálum til sérstakrar dagskrár 10. október undir merkjum Alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins (e. World Mental Health Day). Markmiðið er að auka vitund almennings um geðræn vandamál, mikilvægi geðræktar og forvarna á þessu sviði. Í ár er þema dagsins „Geðheilsa á vinnustað“. Rannsóknir sýna að álag í starfi og vinnuumhverfi getur haft mikil áhrif á andlega líðan fólks og geðheilbrigði. Vinnuveitendur og stjórnendur sem leggja áherslu á heilbrigt vinnuumhverfi stuðla ekki einungis að vellíðan starfsfólks heldur einnig auknum afköstum og árangri. Á hinn bóginn getur óheilbrigt vinnuumhverfi leitt til margvíslegra kvilla eða jafnvel alvarlegra geðrænna vandamála meðal starfsfólks. Slík vandamál koma meðal annars fram í tíðum fjarvistum og minnkandi afköstum. Víða á vinnustöðum er starfsfólk þjakað af kvíða eða þunglyndi vegna óhóflegs álags eða óheilnæmra vinnuaðstæðna. Í þessu sambandi má nefna að yfir 12.000 manns hafa leitað til VIRK starfsendurhæfingarsjóðs frá stofnun sjóðsins árið 2010. Þar af búa 70% við skerta starfsgetu vegna andlegra sjúkdóma og/eða stoðkerfisvandamála sem rekja má til of mikils álags eða annarra neikvæðra þátta í vinnuumhverfinu. Margir bera skýr einkenni kulnunar í starfi.Atvinnurekendur gangist við ábyrgð sinni Ástæða er til að hafa miklar áhyggjur af þessari stöðu. Mikilvægt er að atvinnurekendur og stéttarfélög hugi að forvörnum á vinnustöðum í því skyni að fyrirbyggja kulnun starfsmanna. Þær geta t.d. falist í fræðslu fyrir stjórnendur og starfsmenn um orsakir kulnunar og leiðir til að koma í veg fyrir að hana. Stjórnendur þurfa að fá þjálfun í því að greina einkennin og vita hvernig eigi að bregðast við ef þau koma fram hjá starfsfólki. Með markvissum aðferðum má draga úr líkum á því að starfsfólk veikist í vinnunni, verði óvinnufært og þurfi að leita á náðir heilbrigðiskerfisins og/eða VIRK starfsendurhæfingarsjóðs. Fyrst og síðast verða þó atvinnurekendur að gangast við ábyrgð sinni, gæta að heilsu og velferð starfsmanna, ofbjóða þeim ekki með kröfum og álagi, búa þeim heilbrigðar vinnuaðstæður og virða eðlileg mörk í samskiptum við þá. Hér hafa stéttarfélög og samtök þeirra einnig skýrt hlutverk við að gæta hagsmuna félagsmanna sinna. BHM hvetur félagsmenn aðildarfélaga til að taka þátt í dagskrá Alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins 10. október nk. Hana má nálgast á vefslóðinni www.10okt.com. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Snjall notandi, snjallari gervigreind Agnar Burgess Skoðun Ráð gegn óhugsandi áhættu Hafsteinn Hauksson,Reynir Smári Atlason Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun Ef eitthvað væri að marka Bjarna Gunnar Smári Egilsson Skoðun Fúsk eða laumuspil? Eva Hauksdóttir Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Snjall notandi, snjallari gervigreind Agnar Burgess skrifar Skoðun Ráð gegn óhugsandi áhættu Hafsteinn Hauksson,Reynir Smári Atlason skrifar Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar