Í beinni: Irma veldur eyðileggingu á Flórída Kjartan Kjartansson skrifar 11. september 2017 09:45 Íbúi í Miami virðir fyrir sér ástandið í miðborginni þar sem vatn hefur flætt um götur af völdum Irmu. Vísir/AFP Þrátt fyrir að verulega hafi dregið úr styrk fellibyljarins Irmu eftir að hann gekk á land á Flórída í gær er enn varað við hættu á sjávarflóðum. Irma er nú talin fyrsta stigs fellibylur og er því spáð að hún verði orðin að hitabeltisstormi síðar í dag. Stormurinn fikrar sig nú norður Flórídaskaga en hann var flokkaður sem fjórða stigs fellibylur þegar hann gekk á land í Florida Keys í gær. Tveir eru sagðir hafa farist í ríkinu af völdum Irmu. Fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna segir að meðalvindhraðinn í Irmu mælist nú rétt rúmir 30 m/s. Mesta hættan nú sé af völdum sjávarflóða, sérstaklega á háflóði. Þannig gæti flóðið náð í fjögurra og hálfs metra hæð á Tampa-svæðinu um miðja vesturströnd Flórída. Fylgst verður með nýjustu tíðindum af þróun Irmu og áhrifum hennar á Vísi í dag.
Þrátt fyrir að verulega hafi dregið úr styrk fellibyljarins Irmu eftir að hann gekk á land á Flórída í gær er enn varað við hættu á sjávarflóðum. Irma er nú talin fyrsta stigs fellibylur og er því spáð að hún verði orðin að hitabeltisstormi síðar í dag. Stormurinn fikrar sig nú norður Flórídaskaga en hann var flokkaður sem fjórða stigs fellibylur þegar hann gekk á land í Florida Keys í gær. Tveir eru sagðir hafa farist í ríkinu af völdum Irmu. Fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna segir að meðalvindhraðinn í Irmu mælist nú rétt rúmir 30 m/s. Mesta hættan nú sé af völdum sjávarflóða, sérstaklega á háflóði. Þannig gæti flóðið náð í fjögurra og hálfs metra hæð á Tampa-svæðinu um miðja vesturströnd Flórída. Fylgst verður með nýjustu tíðindum af þróun Irmu og áhrifum hennar á Vísi í dag.
Fellibylurinn Irma Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar Sjá meira