Forstöðumaður Kvíabryggju og forseti bæjarstjórnar skrifuðu meðmæli Árna Johnsen Samúel Karl Ólason skrifar 17. september 2017 21:00 Árni Johnsen. Vísir/GVA
Fyrrverandi forstöðumaður Kvíabryggju og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar skrifuðu meðmæli fyrir Árna Johnsen, fyrrverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, þegar hann sótti eftir uppreist æru og fékk árið 2006. Meðal þess sem þeir Vilhjálmur Pétursson og Guðmundur Sævar Guðjónsson skrifuðu í meðmæli Árna var að hann hefði haldið uppi góðum anda á Kvíabryggju og hann hefði skilað verkefni sem hann vann fyrir Vesturbyggð með sóma. Þetta kemur fram í gögnum sem Dómsmálaráðuneytið hefur sent á fjölmiðla. Gögnin snúa í heild sinni að 32 dæmdum brotamönnum sem hafa fengið uppreist æru á síðastliðnum 22 árum.Árna var veitt uppreist æru árið 2006 en hann hlaut tveggja ára fangelsisdóm, staðfestan í Hæstarétti árið 2003, fyrir fjárdrátt og umboðssvik í opinberu starfi. Við það hlaut Árni kjörgengi á ný og bauð hann sig aftur fram til þings árið 2007 og var kjörinn. Þá gaf hann kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í fyrra.26 atriði Lögmaður Árna nefnir í umsókninni, sem er tímasett þann 14. júní 2006, að hann hefði hvorki gerst sekur um brot gegn almennum hegningarlögum né sérrefsilögum frá því hann lauk afplánun sinni þann 16. nóvember 2003. Á því tímabili hefði hann hegðað sér óaðfinnanlega, verið virkur þátttakandi í þjóðfélaginu og voru nefnd 26 dæmi um það í umsókninni. Á meðal þeirra dæma eru að Árni hafi staðið fyrir góðgerðartónleikum, unnið að uppbyggingu húss Gísla á Uppsölum, gefið út plötu, unnið að ljóðabók, verið þulur og einn af dagskrárstjórum þjóðhátíðar Vestmannaeyja í um 30 ára skeið, hann hafi látið stækka 60 ljósmyndir úr safni sínu, hafi unnið að því að útvega flygil í félagsheimilið í Garði og margt fleira.Hélt uppi góðum anda Í meðmælum Vilhjálms Péturssonar, fyrrverandi forstöðumanns Kvíabryggju, segir: „Hegðun og framkoma frábæra, einnig einstaklega duglegur og samlagðist vel vistmönnum. Hélt uppi góðum anda í húsinu meðan hann dvaldi á Kvíabryggju. Þá segir í meðmælum Guðmundar Sævars Guðjónssonar, fyrrverandi forseta bæjarstjórnar Vesturbyggðar: „Árni Johnsen starfaði hjá okkur í Vesturbyggð að atvinnu- og ferðamálum sumarið 2004. Vinna hans fólks í því að gera úttekt á möguleikum í atvinnusköpun og ferðaþjónustu. Skilaði hann því verkefni með sóma, sá ágæti drengur. Fyrir liggur áfangaskýrsla frá honum með um 80 hugmyndum, mögnuð skýrsla sem nýtist okkur vel. Okkar samstarf er eins og best er á kosið og nýtur hann fyllsta traust. Í alla staði hefur mátt treysta því sem hann segir og gerir og hann vinnur undur hratt. Árni náði einstaklega traustu og vinsamlegu sambandi við allt fólk sem hann vann með á okkar slóðum og er honum óskað alls velfarnaðar í starfi og leik.“ Handhafar forsetavalds í fjarveru forseta Íslands, það er forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti hæstaréttar, skrifuðu undir umsókn Árna. Á skjalinu má sjá að búið er að skrifa: „Föllumst á tillöguna“ og undir skrifa þau Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, Sólveig Pétursdóttir, þáverandi forseti Alþingis, Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, Gunnlaugur Claessen, þáverandi forseti Hæstaréttar, og Þorsteinn Gerisson, þáverandi ráðuneytisstjóri Dómsmálaráðuneytisins.Uppfært: Í upprunalegu útgáfu fréttarinnar var Guðmundur Sævar Guðjónsson ranglega sagður hafa verið bæjarstjóri Vesturbyggðar. Hið rétta er að hann var forseti bæjarstjórnar.
Uppreist æru Tengdar fréttir Á leið inn á Alþingi á ný þremur árum eftir fangelsisvist Þremur árum eftir að Árni Johnsen losnaði úr fangelsi fyrir fjárdrátt og mútuþægni er hann á leið inn á Alþingi á ný. Árni kvaðst í dag kjósa að gleyma því sem liðið er en sækjast í það sem er fram undan. 12. nóvember 2006 18:50 Árni kannast ekki við uppreist æru sinnar Árni Johnsen segist ekki hafa fengið það tilkynnt sjálfur að handhafar forsetavalds séu búnir að undirrita uppreist æru honum til handa. Frétt þess efnis var í Fréttablaðinu í morgun. Ekki hefur náðst í dómsmálaráðherra sem fer með málið og leggur fram tillögu eða nokkurn handhafa forsetavalds, en forseti Íslands er í útlöndum í einkaerindum fram í næstu viku. 30. ágúst 2006 10:00 Dómsmálaráðuneytið segir Árna uppfylla skilyrðin Dómsmálaráðuneytið segir Árna Johnsen hafa afplánað fangelsisdóm sinn og uppfylli að öllu leyti skilyrði fyrir því að fá uppreist æru. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu er hins vegar hvorki staðfestar né hraktar fréttir Fréttablaðsins um að búið sé að skrifa undir uppreist Árna. 30. ágúst 2006 12:00 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira
Á leið inn á Alþingi á ný þremur árum eftir fangelsisvist Þremur árum eftir að Árni Johnsen losnaði úr fangelsi fyrir fjárdrátt og mútuþægni er hann á leið inn á Alþingi á ný. Árni kvaðst í dag kjósa að gleyma því sem liðið er en sækjast í það sem er fram undan. 12. nóvember 2006 18:50
Árni kannast ekki við uppreist æru sinnar Árni Johnsen segist ekki hafa fengið það tilkynnt sjálfur að handhafar forsetavalds séu búnir að undirrita uppreist æru honum til handa. Frétt þess efnis var í Fréttablaðinu í morgun. Ekki hefur náðst í dómsmálaráðherra sem fer með málið og leggur fram tillögu eða nokkurn handhafa forsetavalds, en forseti Íslands er í útlöndum í einkaerindum fram í næstu viku. 30. ágúst 2006 10:00
Dómsmálaráðuneytið segir Árna uppfylla skilyrðin Dómsmálaráðuneytið segir Árna Johnsen hafa afplánað fangelsisdóm sinn og uppfylli að öllu leyti skilyrði fyrir því að fá uppreist æru. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu er hins vegar hvorki staðfestar né hraktar fréttir Fréttablaðsins um að búið sé að skrifa undir uppreist Árna. 30. ágúst 2006 12:00