"Lagom“ með smá af "hygge“ og stóru "húh-i“ Guðrún Högnadóttir skrifar 6. september 2017 07:00 Alveg hreint svakalega er oft erfitt að koma sér aftur í vinnugírinn eftir gott sumar. Stefnan virðist skökk, markmiðin óyfirstíganleg, stemninginn enn föst í minningum um grískar eyjar eða langa hjólatúra – og gömlu óleystu verkefnin bíða í bunkum (sem var reyndar mjög vel raðað hornrétt á skrifborðið korter í frí). Haustið er tími breytinga – náttúran flaggar nýrri litapallettu, fólk fer á flakk í nýjar stöður og verkefni, nýr taktur kemst í sölur og samruna, við vöknum upp við gjörbreytt landslag í mörgum atvinnugreinum, bleikur og gulur IKEA bæklingurinn dettur inn um lúguna, og það er ekki lengur í tísku að „hygge sig“ að hætti Dana – heldur eigum við nú að spegla okkur í lífsspeki Svía og finna hinn gullna „lagom“ meðalveg í öllu – ekki of mikið / ekki of lítið – bara akkúrat passlegt. Hvernig laumum við „lagom“ jafnvægi í metnaðarfullar kröfur samtímans? Hvernig myndir þú koma þér í startholurnar ef verkefnið þitt væri ekki eingöngu að ná fjárhagsáætlun þinnar deildar í lógarítmískum launahækkunum, heldur að útrýma fátækt og berjast gegn ójöfnuði í heiminum? Eða í stað þess að koma nýrri vöru á markað í „rauðu hafi“ samkeppninnar væri verkefni þitt að tryggja heilbrigt líferni, þekkingu og þátttöku kvenna og barna um heim allan. Hvað ef verkefni þitt í haust væri ekki að blása lífi í slappa samfélagsmiðlamarkaðssókn ykkar heldur væri ábyrgð þín að hvetja til hnattrænnar samstöðu um sjálfbæra þróun. Þetta er hluti af verkefnabunka Ban Ki-moon aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til 2030 – versogú. Og þér fannst þinn verkefnalisti voldugur. Reyndar eru Þúsaldarmarkmiðin verkefni okkar allra. Og Ban blessaður komin á eftirlaun. Þegar áskorunin er sem mest verðum við að hugsa öðruvísi. Við getum ekki hamast hraðar eða lengur með verkfærum eða aðferðum sem leysa ekki vandann. Ef þú átt bara hamar líta öll vandamál út eins og nagli sagði Maslow. Við getum ekki lengur talað okkur í kaf á þingi eða ferlað eða „lean-að“ út í hið óendanlega eða skellt nefndum á allt sem hreyfist. Veruleikinn kallar á glænýja hugsun. Hvernig væri að taka „Skandínavann“ á þetta og finna sköpunargleði í sátt og stóískri ró – búa til lausnir á göngu undir berum himni en ekki í loftlausum sterílum fundarherbergjum? Hvernig væri að fá hugljómun um lausn krefjandi vandamáls í leikhúsinu eða við lestur góðrar bókar, en ekki á andlausri skrifstofunni eða í orkusogandi samfélagsmiðlum? Hættum að leita að nýjum svörum í „minnis-loopu“ eigin hugsanna eða í sama afmarkaða hópi alltof líkra einstaklinga og fáum hugmyndir í samtölum í raunheimum við einhvern sem er algjör andstaða okkar í aldri, reynslu og hugsun. Höfum kjarkinn til að virkilega hugsa um hag heildarinnar, sleppum því að þurfa stöðugt að trompa nágrannann – og verum stolt af því að vinna vel en ekki of mikið! Húh!Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar