Þrír sigrar í þremur leikjum hjá átján ára strákunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2017 19:29 Hilmar Pétursson í leiknum í dag. Mynd/FIBA
Íslenska átján ára landslið karla í körfubolta byrjar vel á Evrópumótinu í Eistlandi en íslensku strákarnir unnu sjö stiga sigur á Hvíta-Rússlandi í kvöld, 78-71. Áður hafði íslenska liðið unnið Georgíumenn 92-79 og Ungverja 74-72 á þessu móti. Þetta var uppgjör tveggja ósigraða liða því Hvít-Rússar höfðu fyrir leikinn unnið tvo fyrstu leiki sína eins og íslenska liðið. Friðrik Ingi Rúnarsson er þjálfari íslenska liðsins og er að gera frábæra hluti með strákana. Íslenska liðið er með Hilmar úr Haukum í öðru veldi og þeir Hilmar Henningsson og Hilmar Pétursson voru einmitt stigahæstu leikmenn íslenska liðsins í sigrinum. Hilmar Henningsson var með 18 stig, 7 fráköst, 3 stoðsendingar og 3 stolna bolta en Hilmar Pétursson bætti við 15 stigum og 7 stoðendingum. KR-ingurinn Sigvaldi Eggertsson var með 14 stig og liðsfélagi hans, Andrés Ísak Hlynsson, skoraði 14 stig, tók 8 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Andrés var framlagshæstur í íslenska liðinu með 24 framlagspunkta en hann kom í íslenska liðið vegna meiðsla Hákons Arnar Hjálmarssonar frá ÍR. Íslenska liðið var einu stigi undir eftir fyrsta leikhlutann en vann annan leikhlutann 27-16. Þessi frábæri annar leikhluti lagði grunninn að sigrinum. Íslensku strákarnir spila næst við Króatíu á þriðjudaginn. Króatar hafa unnið alla sína þrjá leiki eins og Ísland.
Körfubolti Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira