Skallagrímur fær til sín unglingalandsliðskonu frá Króknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2017 18:30 Bríet Lilja Sigurðardóttir Mynd/Fésbókarsíða Skallagríms
Bríet Lilja Sigurðardóttir ætlar að taka slaginn með Skallagrími í Domino´s deild kvenna í körfubolta næsta vetur. Borgnesingar hafa styrkt liðið sitt á síðustu dögum. Bríet Lilja er 19 ára gömul og kemur frá Sauðárkróki. Hún hefur leikið bæði með meistaraflokki hjá Tindastól (2013-2014 og 2014-2015) og Þór Akureyri (2015-2016). Bríet var með 9,6 stig, 6,6 fráköst og 3,3 stoðsendingar að meðaltali með Þórsliðinu tímabilið 2015-16. Bríet hefur leikið með yngri landsliðum Íslands (U15, U16 og U18) en síðasta vetur bjó hún á Sauðárkróki og lék með unglingaflokki Tindastóls. Stólarnir lögðu niður kvennaliðið sitt eftir 2014-15 tímabilið og því er þessi efnilega körfuknattleikskona að leita á önnur mið. „Bríet Lilja ætlar að flytja í Borgarnes í haust og taka körfuna með trompi í vetur,“ segir í fréttatilkynningu frá Skallagrími. Bríet Lilja er annar leikmaðurinn sem semur við Borgarnesliðið á síðustu dögum en áður hafði félagið gert samning hina bandarísku Carmen Tyson-Thomas. Tyson-Thomas er einn besti leikmaðurinn sem hefur spilað hér á landi. Skallagrímsliðið vakti mikla athygli sem nýliði í deildinni á síðustu leiktíð en liðið komst í bikarúrslitaleikinn og tapaði síðan í oddaleik í undanúrslitum á móti verðandi Íslandsmeisturum Keflavíkur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Fleiri fréttir Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Sjá meira