Maður er nefndur, ráðherra Gunnar Árnason skrifar 22. júní 2017 07:00 Í lok síðustu aldar bar svo við að viðtalsþættirnir Maður er nefndur voru til sýninga í sjónvarpi allra landsmanna. Sitt sýndist hverjum um gæði þáttanna, hverra stjórn var í höndum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors. Framleiðslan var í höndum félags sem bar heitið Alvís, hvers hagsmuna gætti Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður og fyrrv. hæstaréttardómari. Þeir sem hér hafa verið nefndir til sögunnar, eru þekktir af öðru en að leggjast í veg fyrir erindismenn Sjálfstæðisflokksins, og hafa jafnvel tekið að sér slíkan erindisrekstur sjálfir af einhverskonar sjálfsprottinni skyldu, þó að það sé ekki til umræðu hér. Slíkt kann að viðgangast í stjórnmálaflokkum almennt. En hafa ber hugfast í þessu sambandi að æ sér gjöf til gjalda – og hvort kom á undan, hænan eða eggið. Greinarhöfundur veltir fyrir sér í þessu samhengi hvort nýskipaður dómsmálaráðherra, Sigríður Andersen, nú fremst meðal jafningja sem fánaberi fyrrgreindra erindisrekenda, hafi lagt sig fram um að kynna sér efni umræddra sjónvarpsþátta, og jafnvel ekki fundist neitt sérstaklega mikið til þeirra koma. Það skyldi þó ekki vera að ráðherra hafi ákveðna andúð á því þegar menn eru nefndir eða valdir af nefndum. En fleira kemur til. Dómnefnd um umsækjendur um embætti dómara við Landsrétt hefur nýlokið störfum og lagt fram ítarlega skýrslu ásamt rökstuðningi til grundvallar ákvörðun sinni. Skýrslan er býsna góð. Greinarhöfundur leyfir sér að halda því fram að margir hæfir menn hafi verið nefndir, þegar fyrrgreind hæfisnefnd komst að niðurstöðu sinni. Það hvarflar ekki að greinarhöfundi að halda að lögmenn séu annarrar skoðunar en þeirrar, að ítarlegri og vel rökstuddri niðurstöðu hæfisnefndar verði ekki breytt eða hún felld úr gildi, nema með því að hrekja rökin sem lögð eru til grundvallar niðurstöðunni hverju sinni – eins og í tilfelli úrskurðar eða dóms hjá dómstóli. Dómsmálaráðherra er lögmaður og starfaði sem slíkur um árabil ásamt kollegum sínum á lögmannsstofunni Lex, m.a. við málarekstur fyrir dómstólum. Ganga verður út frá því sem vísu að ráðherrann sé öllum hnútum kunnugur, hafandi starfað sem lögmaður um árabil og rekið mál fyrir dómstólum.Hvað vakti fyrir þeim? Það verður ekki hjá því komist að velta fyrir sér hvað ráðherrann og hans fólk voru að myndast við að gera með umdeildum ráðstöfunum sem nú hafa litið dagsins ljós og gengist hefur verið við. Hvað vakti eða vakir fyrir þeim? Við því hafa ekki fengist viðhlítandi skýringar og hefur háttsemin vakið spurningar fremur en að veita svör. Útskýringar sem hafa verið færðar fram verða að teljast afar óljósar eða jafnvel ófullnægjandi. Er um að ræða einhverskonar Alvísan félagsskap, líkt og forðum í sjónvarpsþáttaframleiðslunni, sem fer fram eins og hentar þó það kunni að líta undarlega út í ljósi þess að um er að ræða ráðherra í ríkisstjórn Íslands, ekki síst gagnvart þeim sem þurfa að gjalda fyrir gjörðirnar. Hins vegar verður ekki fram hjá því litið þegar ákvörðun sérstakrar hæfisnefndar, sem ekki er haldin neinum formgöllum svo vitað sé, liggur skýr fyrir ásamt rökstuðningi þá er eðlilegt að færð séu fram viðhlítandi rök af hálfu ráðherra í ríkisstjórn Íslands sem vill breyta ákvörðun hæfisnefndar í veigamiklum atriðum. Er það eitthvert vafamál? Hvers vegna kýs ráðherrann að færa ekki fram viðhlítandi rök, eins og ráðherra hefur praktíserað undanfarin mörg ár sem starfandi lögmaður? Umrætt starfstímabil sem lögmaður er ráðherra ofarlega í huga eftir því sem best verður séð þegar tekið er mið af breytingum sem ráðherra gerði á niðurstöðu hæfisnefndarinnar. Ekki er ástæða til að slá af kröfunum og gæðum vinnunnar þegar komið er í stól ráðherra, þvert á móti – bæta ætti í, og það myndi um leið slá á efasemdaraddir í garð ráðherra og ekki síður gagnvart nýjum dómstól. Það er ákaflega mikilvægt og eðlilegt að leitað sé skýringa á fyrrgreindri framvindu mála. Höfundur starfar við arkitektúr og hönnun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar