Vilja verða 51. stjarnan á þjóðfána Bandaríkjanna Jóhann Óli Eiðsson skrifar 13. júní 2017 09:00 Ricardo Rossello fagnaði innilega þegar úrslitin lágu fyrir. vísir/epa
Íbúar Púertó Ríkó samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu um helgina að falast eftir því að verða 51. ríki Bandaríkjanna. Leiðin þangað er hins vegar ekki auðveld en bandaríska þingið þarf að samþykkja tillögu þess efnis. Efnahagsástandið á eyjunni hefur verið ömurlegt að undanförnu. Skuldir eyjaskeggja eru um 70 milljarðar dollara, andvirði um sjö billjóna íslenskra króna, og tæplega annar hver íbúi er undir fátæktarmörkum. Sökum þessa er starfsemi skóla og sjúkrahúsa ekki líkt og best verður á kosið. Af þeim sökum er talið ólíklegt að bandaríska þingið muni taka vel í að innlima Púerto Ríkó í landið. Af þeim sem greiddu atkvæði á sunnudag vildu 97 prósent verða ríki innan Bandaríkjanna. Kosningaþátttaka var hins vegar dræm en aðeins tæpur fjórðungur sá sér fært að mæta á kjörstað. Þetta er í fimmta sinn frá árinu 1967 sem slík atkvæðagreiðsla fer fram. „Frá og með deginum í dag getur alríkisstjórnin ekki haldið áfram að hunsa raddir meirihluta amerískra íbúa Púertó Ríkó,“ segir í yfirlýsingu frá Ricardo Rossello, landstjóra Puertó Ríkó. „Það væri mikil hræsni ef Washington, sem kallar ítrekað eftir því að önnur ríki heimsins virði lýðræði, hlustaði ekki á vilja bandaríska sambandssvæðisins Púertó Ríkó.“ Sú staðreynd að Karíbahafseyjan er sambandssvæði en ekki ríki er talin stór þáttur í slæmu efnahagsástandi landsins ásamt óábyrgri efnahagsstjórn.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira