Erlent

Bjór í boði fyrir alla þá sem kjósa

Atli Ísleifsson skrifar
Þeir sem vilja þiggja slíkt boð þurfa einungis að taka mynd af sjálfum sér fyrir utan kjörstað og sýna starfsmönnum á börum BrewDog myndina.
Þeir sem vilja þiggja slíkt boð þurfa einungis að taka mynd af sjálfum sér fyrir utan kjörstað og sýna starfsmönnum á börum BrewDog myndina. Vísir/EPA
Skoska bruggfyrirtækið BrewDog hefur boðið öllum þeim sem kjósa í bresku þingkosningunum á fimmtudag frían bjór.

Fyrirtækið segjast með þessu vilja hvetja til að „raddir allra heyrist“ og munu bjóða öllum þeim sem mæta á kjörstað Punk IPA bjór á einhverjum af 29 börum fyrirtækisins víðs vegar um Bretland. Kjósendur munu geta nýtt sér boðið til föstudagsins 9. júní.

Þeir sem vilja þiggja slíkt boð þurfa einungis að taka mynd af sjálfum sér fyrir utan kjörstað og sýna starfsmönnum á börum BrewDog myndina.

„Kosningar eru mikilvæg stund fyrir þá sem finnast þeir vera jaðarsettir og hunsaðir til að stíga upp og láta í sér heyra, svo við viljum hvetja og verðlauna þá sem láta í sér heyra þann 8. júní,“ segir James Watt, forstjóri BrewDog, um boð fyrirtækisins.


Tengdar fréttir

Gæti fengið áætlunina aftur í hausinn

Þegar Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, boðaði til kosninga, þremur árum fyrr en áætlað var, benti fátt annað til þess en að Íhaldsflokkurinn myndi vinna stórsigur. Undanfarna daga hefur Verkamannaflokkurinn hins vegar saxað mikið á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×