Mest í því sem er frekar fljótlegt Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 27. maí 2017 09:00 Helena hefur haft gaman af matargerð og bakstri frá því hún man eftir sér fyrst. Vísir/Ernir
Frá því ég man eftir mér hef ég haft gaman af að elda og baka. Það er enn fyrst og fremst áhugamál því ég er í fullu starfi við annað en tek líka aðeins að mér verkefni sem snúa að matargerð. Það er góð hvíld frá hinni vinnunni en hvort tveggja er skemmtilegt,“ segir Helena Gunnarsdóttir, verkefnastjóri í Háskóla Íslands. „Ég elda alltaf eitthvað sem mig langar í sjálfa. Eitt af því er þetta sumarlega kjúklingasalat með bragðmikilli hunangs/chili-dressingu sem er bæði marinering og sósan yfir salatið,“ segir Helena. „Súkkulaðikakan er líka klassísk og algert uppáhald á mínu heimili.“ Upplagt er að marinera kjúklingabringurnar og eiga þær tilbúnar í ísskáp til að henda á grillið, að mati Helenu. „Þær kólna svo meðan maður græjar salatið,“ bendir hún á. „Heimagerðu brauðteningarnir úr súrdeigsbrauðinu eru algert möst, steiktir upp úr smjöri. Ég er mest í því sem er svolítið fljótlegt, hef ekkert rosa mikla þolinmæði og vil að hlutirnir gangi hratt.“ Helena hefur verið með matarbloggið eldhúsperlur.com frá árinu 2012 en segir hafa heldur dregið úr virkninni þar eftir að hún fór að vinna meira utan heimilis. „Ég er aðeins að elda fyrir Gott í matinn.is og sjá um matarþátt fyrir tímarit. En matarbloggið var byrjunin.“Þetta girnilega salat ber sumarið í hús og best er að snæða það um leið og það er komið á borð. Fréttablaðið/ErnirVísir/ErnirHunangs/chili kjúklingasalat fyrir 2–3 Marinering og sósa ½ dl hunang ½ dl dijon-sinnep ½ dl ólífuolía 2-3 tsk. chili-mauk (t.d. sambal oelek) eða 1 rauður hakkaður chili 1 tsk. sjávarsalt Safi úr einni límónu 2 kjúklingabringur Brauðteningar 2 vænar sneiðar súrdeigsbrauð 3 msk. smjör og 1 msk. ólífuolía Salt og pipar Salat Einn poki salatblanda eða annað salat eftir smekk 1 mangó 1 lárpera Kirsuberjatómatar Fetaostur Pískið saman allt sem fer í marineringuna. Leggið kjúklingabringurnar á disk, takið fjórar matskeiðar af sósunni og hellið yfir bringurnar. Látið marinerast í ísskáp í tvær klukkustundir eða á borði í 30 mínútur. Geymið restina af sósunni til að hella yfir salatið. Rífið brauðið í litla teninga. Bræðið smjörið á pönnu og hitið ásamt ólífuolíunni. Steikið brauðteningana þar til þeir eru stökkir og kryddið með salti og pipar. Færið þá yfir á disk með eldhúspappír og látið bíða. Steikið eða grillið kjúklingabringurnar þar til þær eru eldaðar í gegn. Skerið allt sem á að fara í salatið niður og leggið á stórt fat. Sneiðið að lokum kjúklinginn í þunnar sneiðar, dreifið brauðteningunum yfir ásamt fetaosti og hellið sósu eftir smekk yfir allt saman. Berið fram strax.Hveitilausa súkkulaðikakan sligast undan gómsætum berjunum.Vísir/Ernir Hveitilaus súkkulaðikaka 250 g dökkt súkkulaði 150 g smjör 1 tsk. vanilluextrakt 1/4 tsk. salt 2 dl sykur (skipt í tvennt) 6 egg (2 heil, 4 eggjarauður og hvítur aðskilið) Hitið ofn í 180 gráður (160 með blæstri). Bræðið smjör og súkkulaði við vægan hita, takið það af eldinum, bætið salti og vanillu saman við og látið það kólna aðeins. Þeytið fjórar eggjahvítur ásamt einum dl af sykri í skál þar til þær eru stífþeyttar. Setjið tvö heil egg og fjórar eggjarauður í aðra skál ásamt 1 dl af sykri og þeytið vel. Hellið brædda súkkulaðinu saman við eggjarauðublönduna og hrærið vel. Bætið svo eggjahvítunum varlega saman við og hrærið hægt og rólega með sleif eða sleikju. Hellið deiginu í ósmurt 24 cm lausbotna smelluform og bakið í 40 mínútur. Kælið í minnst klukkustund áður en þið fjarlægið hringinn varlega af smelluforminu. Gott er að renna hníf meðfram hliðunum á forminu. Toppurinn á kökunni á að vera svolítið sprunginn. Skreytið kökuna með ferskum berjumog berið fram með þeyttum rjóma.
Mest lesið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Einar fékk meira hár en Baldur Lífið „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Lífið „Ég er sáttur við það dagsverk“ Menning „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið Glatkistunni lokað Menning Grindavík sigursæl erlendis Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Árin hjá Spotify ævintýri líkust Einar fékk meira hár en Baldur „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Sjá meira