Innlent

Löggan vissi af dópinu

Snærós Sindradóttir skrifar
Rannsókn lögreglu á máli tveggja manna sem grunaðir eru um að smygla fíkniefnum til landsins með Norrænu teygir anga sína til Hollands.
Rannsókn lögreglu á máli tveggja manna sem grunaðir eru um að smygla fíkniefnum til landsins með Norrænu teygir anga sína til Hollands. vísir/GVA
Rannsókn lögreglu á máli tveggja manna sem grunaðir eru um að smygla fíkniefnum til landsins með Norrænu teygir anga sína til Hollands. Mennirnir tveir, sem eru í haldi lögreglu, eru báðir pólskir en annar mannanna kom efnunum til landsins með bíl í Norrænu en hinn ferðaðist hingað nokkrum dögum áður og veitti efnunum viðtöku. Mikill fjöldi smyglmála, sem komið hafa upp undanfarin ár, hefur sterka tengingu við Holland.

Lögreglan greindi frá því í gær að mennirnir hefðu verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 12. maí. Heimildir herma að lögreglu hafi borist ábending um innflutninginn nokkru áður en Norræna kom til landsins á þriðjudag í síðustu viku. Rannsókn á frumstigi hafi leitt í ljós hvernig maður í Hollandi reyndi að sannfæra pólska smyglarann um að þrátt fyrir að fíkniefnahundar og tollayfirvöld gætu komið að leit í skipinu væri engin hætta á að efnin fyndust. Svo haganlega væri búið um þau.

Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst óskaði lögregla eftir heimild til að koma fyrir hlerunarbúnaði í bílnum og staðsetningartæki. Fram hefur komið að maðurinn var ekki handtekinn við komu til landsins heldur leyft að koma efnunum á áfangastað þar sem báðir voru handteknir.

Fíkniefnin eru í efnagreiningu svo ekki liggur fyrir hvers konar efni er um að ræða né nákvæmt magn.

Misjafnlega hefur gengið að finna höfuðpaura í smyglmálum sem undanfarið hafa komið upp og hafa tengingu við Holland. Grímur Grímsson, yfirmaður rannsóknarinnar, segir allt kapp lagt á að rannsaka aðild grunuðu að málinu en segist ekki geta sagt til um hvort lögregla telji öll smyglmálin, sem komið hafa upp með tengingu við Holland, eigi sömu upptök hér á landi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×